Þarf að brugga nokkra skammta "fyrir almenning" í sumar, svo ég ákvað að prófa aðferð til að auka afköstin mín aðeins þar sem mér finnst nokkuð leiðinlegt að brugga þessa uppskrift.
Uppskriftin er semsagt þessi: http://fagun.is/viewtopic.php?f=8&t=2733
en undanfarið hef ég bætt við 500 gr af carahelles í staðinn fyrir 500 gr af pale og bætt við eins og nokkrum grömmum af black malt til að fá gullnari lit.
Ég ákvað að reyna að fá 50 lítra útúr venjulegri 25 lítra suðu. Þannig að ég rúmlega tvöfaldaði allt kornmagn og endaði með þetta:
4.2 kg Pilsner
3.5 kg 2-row
0.5 kg carahelles
0.02 kg black malt
0.4 kg sykur
Þetta endaði í 1.088. Humlaði svo ríflega, uppí 40 IBU skv beersmith þar sem ég hef heyrt að maður fær minna útúr humlunum í svona stórum bjórum.
Splittaði svo þessum 25 lítrum í 2 carboy, og toppaði upp með vatni og endaði með 50 lítra af 1.044 bjór. Gerjaði með 11 gr af US-05 í hvern skammt.
Þetta gerjaðist frekar hratt og ég hugsa að ég smelli þeim á kút á morgun, verður áhugavert hvort þetta komi þokkalega út. Vona að þetta komi nógu vel út til að fólk geti skellt í sig í nokkrum veislum, þarf ekki að vera frábært