ég´hef rekist á þessa uppskrift á nokkrum stöðum á netinu. eins og hér http://www.moremead.com/mead_logs/Ancient_OCC.html" onclick="window.open(this.href);return false;
svona lagði ég þetta niður
Appelsínumjöður, 20 lítrar
15 dollur af europris hunangi (450gr í dollu)
5 stórar appelsínur skornar í sneiðar
125 rúsínur (50 grömm)
4 kanilstangir
3 negulnaglar
2 ml (4 x pinch) af allrahanda (allspice)
2 ml (4 x pinch) af múskat (nutmeg)
2 bréf af kampavínsgeri, lavin 1118
yfirleitt er mælt með því að blanda bara öllu saman, en ég kann betur við að sjóða hunangið aðeins. þá er líka hægt að sterilesera ávextina.
sjoða hunangið í 10 mín, fleyta froðunni ofanaf.
sjóða appelsínurnar í nokkrar mín með rúsínunum.
setja allt í fötu og fylla upp í 20 lítra með kranavatni.
þegar vökvinn hefur náð stofuhita þá smellir maður gerinu í.