Ákvað að skella í einn þráð hérna varðandi Cider framleiðslu mína (mest megnis tilraunir) fyrir þá sem hafa áhuga. Ég er opinn fyrir öllum tillögum og uppástungum
Spurning hvort þetta ætti frekar heima í "Hvað er verið að brugga" dálkinum?? ef svo er þá má alveg færa það þangað mín vegna
Nöfnin sem ég notast við eru alltaf Beat/Beats eitthvað eða eitthvað beat/beats enda kalla ég þetta Beatsuka Brew
Ég er að notast við "Home brewing caps" aðferðina frá Pat Mack. sjá:http://homebrewingcaps.com/
Ég mun síðan auðvitað prufa mig áfram síðar meir í að nota gerjunartunnur og aðrar aðferðir en þessi leið er að virka mjög vel enn sem komið er allavega
Mín fyrsta epla cider tilraun kom ágætlega út - hægt að lesa nánar um hana í svari við öðrum þræði hérna: http://fagun.is/viewtopic.php?f=15&t=2969
Ég var að fá í hús 10 auka tappa ásamt 20gr af þurrgeri frá Pat Mack og ákvað ég því að fara í smá tilrauna starfsemi. Eftirfarandi eru þær uppskriftir sem ég skellti í.
Time Test: - Beats Apples
Tilgangur þessarar blöndu var einungis til að finna út á hvaða stigi gerlunar mér þætti ciderinn koma best út. ég útbjó 6x 0,5L flöskur af Epla Cider sem ég mun taka úr gerjun á mismunandi dögum, byrja á degi 5, 6, 7, 8, 9 og að lokum 10. miða ég við viðmiðunar töflu frá Pat Mack um áættlað áfengismagn eftir dögum með þessari aðferð.
Uppskrift:
3 Lítrar Epla Brazzi
420 gr. hvítur sykur.
hér má sjá viðmiðunartöflu áfengismagns eftir dögum (áættlað ABV)
Taste Test nr 1. - Super Beats (Red)
2 Lítrar Rauður superberries safi
100 gr. hvítur sykur
100 gr. púðursykur
100 gr Síróp
3 DL vatn
Sykrum og síróp leyst upp í 3 DL af vatni, það síðan blandað saman við safan í 2L flösku. gengið er úr skugga um að allt hafi blandast vel saman. síðan er bætt við ca. 60 kúlum af geri og home brew tappinn skrúfaður á. þetta mun svo standa inní skáp í u.þ.b. 10 daga og síðan kælt í aðra 3-5 daga (jafnvel lengur)
Taste test nr. 2 - Beats Brown
1 Líter Epla Brazzi
140 gr. púðursykur.
Sykur leystur upp í eplasafa og síðan settur í 1 Líter flösku - fyllt upp með eplasafa - ca. 30 gerkúlum blandað útí og tappinn settur á. Þessi mun bíða í u.þ.b. 10 daga og kældur í 10 daga + til að ná sem tærustum
Taste test nr. 3 - Mixing Beats.
1 Líter epla brazzi
40 gr hvítur sykur
40 gr púðursykur
60 gr síróp
Sykur og síróp leyst upp í eplasafa, sett í 1 líter flösku og fyllt upp með eplasafa - ca. 30 gerkúlum blandað útí og tappinn settur á.
Þessi mun bíða í u.þ.b. 10 daga og kældur í 3-5 daga
Taste test nr. 4 - Helgu Beats.
Þessum fékk frúin að stjórna frá A-Ö
1 Líter Trönuberjasafi
50 gr. hvítur sykur
50 gr. Síróp
Sykur og síróp leyst upp í trönuberjasafa og sett í 2L flösku - Rest af líters trönuberjasafanum sett í flöskuna - ca. 30 gerkúlum blandað útí og tappinn settur á. - Þessi mun síðan bíða í u.þ.b. 6 daga og síðan kældur í 3-5 daga.
Aukalega er ég með í gerjun svokallað Super Beats (blue) sem ég skellti í þann 26. Janúar. En þar er uppskriftin svohljóðandi:
1 Líter fjólublár superberries safi
40gr púðursykur,
45 gr síróp
1tsk vanilludropar
3dl vatn.
Sykur, síróp og vanilludropar blandað saman við 3dl vatni í potti, náð upp í suðu og kælt niður aftur. blandað útí safann. ca. 60 gerkúlur. tappi settur á og mun þessi fá að bíða í ca. 7 daga, síðan kældur í 3-4 daga og smakkaður s.s. næstu helgi.
Pat Mack's tapparnir voru settir á allar flöskurnar. ekki er hægt að gera þetta með venjulegum töppum.
Hér má sjá myndir frá þessu tilraunakvöldi. Afsaka léleg gæði enda rétt tekið á gsm síma þar sem að myndavélin var rafmagnslaus og ég fann ekki hleðslutækið hah... (2 myndir teknar úr snapchat safni sem gerir hlutina enn verri)
Öllum safanum raðað upp. (tekið með snapchat, urðu aðeins fleiri en 3 tilraunir í lokin)
Verið að blanda í time testið.
Verið að blanda í Super Beats (red)
Allt blandað og klárt fyrir gerla og töppun- séð frá hægri: Beats Brown, Mixing Beats, 6x time test, Super Beats (red), Helgu Beats.
Gerlað, tappar komnir á og fallega bleikir merkimiðar komnir með dagsetningum og nöfnum.
Ef þið hafið einhverjar spurningar, ábendingar eða hugmyndir af skemtilegum uppskriftum (er rétt svo að byrja bara) þá endilega skjótið þeim áfram!
Kem svo með útkomuna hérna inn þegar að því kemur!