Þá er ég loksins búinn að koma fyrstu brugguninni af stað. Við erum flutt í hús og í kjallaranum er ljómandi 3,5 fermetra dimm kompa með litlum glugga sem ég hef til eigin einkaafnota undir misvitrar tilraunir.
Ég er frekar hrifinn af Amarone og öðrum kröftugum rauðvínum, svo eftir ábendingu valdi ég að byrja á frekar ódýru 8-lítra Nebbiolo kitti frá DOC (?) og fékk leiðbeiningar um hvernig ég gæti látið það "nálgast" amarone.
Leiðbeiningin gekk út á að bæta 60 gr af eik í primary ásamt 6 gr af tannín, bæta svo í allt að 60 gr af eik í secondary ef þurfa þætti. En, þar sem amarone er hærra í % en almennur Nebbiolo (því amarone er jú gert úr þrúgum sem hafa fengið að þorna örlítið) var mér líka ráðlagt að "spæka" vínið örlítið, þar snerist málið um að láta 2 lítrum minna af vökva en uppgefið í uppskriftina og eftir fyrstu 4 daga í primary að sjóða upp 2 lítra með 1 kíló sykri og bæta leginum svo við þegar hitastigið væri nánast eins á gerjunardjúsinum og sykurlögninni (til að gerinn fengi nú ekki sjokk). Nú, þessar leiðbeiningar hljómuðu ekki svo far-fetched, svo þetta er basically það sem ég er að reyna að gera í þessarri fyrstu tilraun.
Ég hef heyrt misjafnar sögur af svona smáum kittum, svo væntingar mínar eru takmarkaðar fyrir þessa fyrstu tilraun, en sjáum til, ef þetta kemur svipað eða betur út en pappakassavín, þá er ég meira en sáttur. Því á móti kemur að ég hef ekki prufað nein rauðvínskitt áður, svo það er svosem í lagi að byrja neðarlega.
Anyways.. Lögnin var sett af stað á laugardaginn 3 mai, upphafs SG var sýndist mér 95 á mælinum, held það þýði 1095 (með 2 lítrum minna af vatni) og nú bíð ég miðvikudags til að bæta sykurleginum við, þar ætla ég að taka gravity fyrir og eftir viðbætingu sykurs, en ég kem svo kannski með frekari pósta eftir því sem á líður.
Söluaðilinn fyrir kittið heldur því fram að nokkra mánaða öldrun geri vín úr þessu kitti gott, svo planið er að leyfa þessu að eldast í 3-6 mánuði (amk ef það smakkast ekkert of vel í byrjun).
Ég hef líka augun á lítilli loftpumpu til að degassa : http://www.pgw.se/luftpump.html en panta hana þegar tími gefst til.
Hér í baunalandi er skilst mér erfitt að koma höndum yfir "betri" vínkitt, sumsé meira en 8 litra, en þó er hægt að panta þau frá bretlandi eða sem sérpöntun í gegnum verlsanir sem þegar flytja inn ódýrari kittin. Í garðinum mínum eru líka rabbabari, nokkur eplatré, plómu og kirsuberjatré, svo tækifærin til að búa sér til eitthvað úr eigin garði eru einhver
Fyrir mér er þetta meira hobbý en sparnaður, beljurnar kosta ekki nema um 100 dkr útúr búð, svo ég er ekki að græða neinar fúlgur á því að bauka þetta sjálfur.
Mun reyna að pósta eftir því sem líður á..