Mig langaði til að prófa eitthvað nýtt, og ég hef litla reynslu af Vienna, þannig að mér fannst borðleggjandi að gera SMaSH bjór úr því. Fyrst var ég að pæla í að vera hefðbundinn og velja þýska humla, en svo datt mér í hug (með pínu innblástur frá Teresu) að skella amerískum humlum í staðinn. Centennial hafa löngum verið mínir go-to humlar, þannig að þeir urðu fyrir valinu.
Þessi uppskrift gæti varla verið einfaldari. 10kg af Vienna, 100g af Centennial.
Nýtingin var 65%, sem virðist vera sirka það sem ég get gengið að með meðalstóra bjóra. Ég yfirskaut aðeins magnið, þannig að OG er örlítið neðar en það á að vera - innan skekkjumarka þó. Ég var að nota PID stýringuna mína í fyrsta skipti. Mér sýnist að ég þurfi að fínstilla hana aðeins betur, en þetta gekk samt frábærlega vel.
Uppskriftin:
Þetta er 40l lögun (endaði með 43-44). Ég skipti henni í tvennt og setti US-05 í helminginn (sú fata er ekki í gerjunarskáp), og W-34/70 í hinn helminginn, sem gerjast við 11°C. Svo er planið að lagera báðar föturnar saman og þurrhumla. Það verður áhugavert að finna muninn á lagergeri og snyrtilegu ölgeri. Ég bleytti upp í gerinu og pitchaði í báðar föturnar við örlítið lægra hitastig en þær eiga að gerjast við (US-05 fór út í við 17°C og W-34/70 við 9°C).Recipe Specifications
--------------------------
Boil Size: 48,41 l
Post Boil Volume: 41,60 l
Batch Size (fermenter): 40,00 l
Bottling Volume: 40,00 l
Estimated OG: 1,051 SG
Estimated Color: 12,7 EBC
Estimated IBU: 44,7 IBUs
Brewhouse Efficiency: 65,00 %
Est Mash Efficiency: 65,0 %
Boil Time: 60 Minutes
Ingredients:
------------
Amt Name Type # %/IBU
55,00 l Munich, Germany Water 1 -
10,86 g Chalk (Mash 60,0 mins) Water Agent 2 -
3,33 g Baking Soda (Mash 60,0 mins) Water Agent 3 -
1,56 g Epsom Salt (MgSO4) (Mash 60,0 mins) Water Agent 4 -
10,00 kg Vienna Malt (Weyermann) (8,0 EBC) Grain 5 100,0 %
60,00 g Centennial [10,00 %] - First Wort 60,0 m Hop 6 44,7 IBUs
40,00 g Centennial [10,00 %] - Dry Hop 0,0 Days Hop 7 0,0 IBUs
Þetta verður eitthvað!