Sælir..
Ég er í vandræðum með 60L suðupott sem er smíðaður að mestu eftir þessum leiðbeiningum.
Semsagt 60L plasttunna frá Saltkaupum og 3x hitaelement, tekin úr hraðsuðukötlum.
Gallinn við elementin úr kötlunum er sá að þau hætta að hita þegar þau ná ákveðnu hitastigi og þau sem ég er með í þessum potti halda ekki suðu nema í svona korter og hrökkva svo ekki í gang aftur fyrr en hitinn á virtinum er kominn í c.a. 70°C
Hitavörnin er örugglega ennþá á þeim (sem er notuð til að slökkva á elementunum í venjulegum hitakatli), það eina sem á að vera á elementunum eru pólarnir, annað áttu að rífa í burtu
Ég ætla því að fjárfesta í betra elementi í pottinn og er með nokkrar vangaveltur sem mig langaði að bera undir ykkur.
Er 3500W element (eins og það sem Hrafnkell selur) nóg í svona pott?
Það fer eftir því hvað þú ert að gera stórar lagnir og hversu þolimóður þú ert... Ég er sjálfur með 5,5kW og er oftast að gera 25L batch, ég myndi ekkki nenna að vera með minna element eftir að hafa verið með þetta.. Ég er með PID regli og dælu (það er möst fyrir þetta element)
Er sniðugra að fara í kringlótt element eins og þau sem fást í Rafhitun?
Hversu nauðsynlegt er að vera með PID stýringu á svona elementum?
Ef þú ert með hringrásardælu þá er nauðsynlegt að vera með PID ef þú ætlar að halda hitanum stöðugum í meskingu
Kv,
Gunnar