Síðbúið svar á ferð, svo skiptir vart miklu héðan í frá.
Ég hef reynt ýmsar bjórtegundir með hangikjöti á síðustu árum, allt frá léttum enskum bitterum til þyngri, sætra belgískra klausturbjóra. Sá sem ég var hrifnastur af með hangikjötinu var reyktur bjór, Aecht Schlenkerla Rauchbier Märzen. Hann fæst því miður ekki lengur í verslunum ÁTVR.
Sá sem næstur komst var Trappist Dubbel, og þar á eftir passaði Lava frá ÖB furðu vel við að mínu mati.
Ólíkir bjórar, en þetta voru topp þrír úr mínum prófunum. Hverjum þykir sinn fugl fagur. Gleðilega hátíð!
Uppfært: Alls ekki óskylt með öllu, en því má bæta við að nú er ég í leit að góðu rauðvíni með hangikjötinu þar sem Aecht Schlenkerla er ekki lengur á boðstóðum. Er almennt hrifnastur af Shiraz og Cabernet Sauvignon vínum frá Ástralíu, Suður Afríku og Frakklandi. Hugmyndir vel þegnar!