Er einhver að nota hævert-startara eins og þenna hér?
Veit einhver hvort þetta fáist á Íslandi?
Ef ekki, þá ætla ég að panta 1 stk. og ef einhver vill vera með í þeirri pöntun þá getiði sent mér skilaboð.
Svo læt ég fylgja með texta úr Saga daganna eftir Árna Björnson:
"Þótt skilyrði til ölgerðar hafi verið óhæg vegna takmarkaðrar kornyrku, virðast menn ekki hafa látið deigan síga í þeim efnum, því að nálega hið eina sem ráða má af sögum um jólahald í heiðni lýtur að jóladrykkju, jólaöli og jólaveislum"
Þessir virka bara á carboy með þröngum stút, td úr gleri eða Better Bottle. Ef þú vilt alhliða tæki sem virkar lika á hefðbundnar fötur mæli ég með svona, hef séð það í Ámunni og jafnvel brew.is
Ég er að reyna að leysa þetta sull sem er í kringum átöppunina því ég vil ekki fara að troða slöngunni upp í mig. Það sem kom til greina var siphon með pumpu, eða þessi loft-siphon.
Pumpan (auto siphon) er þeim galla búin að pakkninginn byrjar gjarnan að springa vegna þurrks og endingin því ekki ýkja góð (1 ár eða þar um bil hjá mér, að mig minnir - var þó einstaklega virkur bruggari á þeim tíma). Aftur á móti lenti ég aldrei í vandræðum með venjulegan hævert sem ég ýmist saug eða lamdi niður í fötuna til að koma flæðinu í gang.
En ef sýklahræðslan er að fara með þig, mæli ég náttúrlega ekki með að auka á hana með því að sjúga slönguendann. Maður þarf þó að hafa einhverja afar sérstaka sýklaflóru í kjaftinum til að hún gæti mögulega lifað, dafnað og haft áhrif á bjórinn, að ég held.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Sýklahræðslan er enn á lágu stigi, en er til staðar Það sem skiptir mig meira máli er að gera þetta hreinlegra. Í hvert skipti sem ég loka hævertnum (stífla slönguna) missi ég vökvan úr mínum enda slöngunnar. Það er svo sem í lagi því ég er með fötu fyrir neðan en þegar ég byrja á næstu flösku kemur næsti skammtur á meiri hraða sem þýðir meira súrefni í flöskuna.
Vandamálið með hævertin er því tvíþætt: Sýklahræðsla og súrefnishræðsla