Þessi fékk góðar viðtökur á mánudagsfundi í gær (sept 2013) og var ég beðinn um uppskriftina. Mig minnir að ég hafi fengið hana í Brew magazine, nóteraði ekki hjá mér hvaða tölublað það var þó. Ég held ég hafi fylgt uppskriftinni nokkuð nákvæmlega fyrir utan það sem ég bætti í í secondary. Þetta er 13 bjórinn sem ég geri, því fékk hann þetta nafn hjá mér.
6,35 kg Pale Malt 2-row
0,45 kg Caramel Crystal 60L
0,45 kg Roasted Barley
0,34 kg Caramel Crystal 120L
0,23 kg Chocolate Malt
26 g Northern Brewer 90 mín
43 g East Kent Goldings 60 mín
29 g Fuggles 20 mín
15 g Fuggles 2 mín
2 pk Nottingham
OG 1,085
Est ABV 8,2%
Ég var með hann 2 vikur í primary. Þá sauð ég smá sykurvatn (ca 50g sykur) og setti í carboy. Ég gufusauð hálfan poka af eikarkubbum sem teknir eru úr gömlum bourbon eikartunnum og setti líka ofan í carboy. Fékk þá hjá brew.is, eru líklega svipaðir þessum http://www.northernbrewer.com/shop/oak- ... toast.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Þeger þetta var orðið kalt fleytti ég bjórnum ofan á. Var með þetta í tæpa 3 mánuði í secondary. Þessir kubbar gefa mjög vægt bourbon bragð, liggur þarna í bakgrunni og er alls ekki yfirþyrmandi. Það er líklega smekksatriði hversu mikið bragð menn vilja, bara að prófa sig áfram.