Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
4.3 kg Pale malt
0.45 kg Crystal 40 malt
0.3 kg Crystal 60
0.14 kg Crystal 90
18 g. 5% cascade 60 mínútur
31 g 3% saaz 15 mínútur
Uppskriftin talar um WUYEAST 1007 WLP 029 blautger en í samráði við Hrafnkel set ég S-05 út í í staðinn. Hrafnkell hjálpaði mér líka að finna hliðstæður í korninu.
Þetta er fimmta lögunin og þar af leiðandi nafnið á bjórnum tengt tölunni fimm. Er einhver sem getur séð tenginguna? Ef svo er ætti sá hinn sami/sú hin sama auðveldlega að geta ímyndað sér hvernig miðinn verður.
[quote="tryggvib" Þetta er fimmta lögunin og þar af leiðandi nafnið á bjórnum tengt tölunni fimm. Er einhver sem getur séð tenginguna? Ef svo er ætti sá hinn sami/sú hin sama auðveldlega að geta ímyndað sér hvernig miðinn verður.[/quote]
Treysti því að þú drekkir fyrstu flöskuna þann 5. 11.
Jebb! Þótt Eyvindur eigi kollgátuna um nafnið þá á Kári kollgátuna um miðann (reyndar tengist þetta allt saman afskaplega vel).
Ég er einmitt að miða að því að flöskuopnunarhátíðin verði 5. nóvember Ég þyrfti eiginlega að útvega mér V for Vendetta myndasöguna til að lesa þegar ég opna bjórinn.