Ég er ekki mjög fróður um flotvogir, en getur verið að það sé skekkja í mælingum þótt hún mæli vatn rétt?
Í öllu falli fer ég ekki ofan af því fyrr en ég smakka sjálfur og/eða sé samanburðarmælingar að þetta geti ekki verið annað en sýking eða mæliskekkja. 100% malt bjór ætti aldrei að geta gefið 100% attenuation með ölgeri einu saman.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Við verðum bara að reyna að mæta á næsta mánudagsfund með þá ásamt mæliglasi og flotvog gæti reyndar verið vesen að mæla þegar búið er að kolsýra afþví að loftbólur sem myndast á flotvogini ættu að hækka mælinguna.
Verður áhugavert að heyra hvernig þessi smakkast, ég er eins og hrafnkell og eyvindur, ég trúi ekki að porter fari niðrí 1.000. Hef bruggað sennilega 60-70 skammta í heildina og sá bjór sem lægst hefur farið hjá mér var saison sem fór niðrí 1.004 og var brakandi þurr alveg.
Hlýtur að vera mælirinn, eða þá sýking sem er ekki alveg komin fram ennþá.
Sælir
þetta eru þrír bjórar með mög lágt FG, 1.000, 999 og 998, allt úr sömu meskingu en með 3 mismunandi ger og einn þeirra þurrhumlaður. Einhverjir voru að mislesa, Sindri sem stofnaði þráðinn var með porter sem endaði lágur, 1,004 en við bræðurnir "stálum honum" óvart þegar við minntumst á okkar mælingar. Mig langar að taka þessa bjór með á Gorhátíðina, smá smakk. Er einhver til í að taka með sér refractometer og/eða flotvog til að sannreyna þessar mælingar? Miðað við stóru efasemdirnar þá verður stakur mælir væntanlega véfengdur en nokkrir mælar ættu að vera trúverðugir... Ég stefni á að mæta með bjórinn og mína flotvog.
Hrafnkell fékk 1 flösku frá mér.. Spurning hvernig sú mæling komi út
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....