Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Hvað sauðstu ananasinn lengi?
Það er nefninlega í honum ensím (bromelain) sem brýtur niður prótein og er notað til að tenderæsa kjöt, og það gæti mögulega haft áhrif á gerið.
Örugglega ætti það að vera í lagi ef þú sauðst hann nógu lengi til að gerilsneyða, því ensímið verður óvirkt við 65°c
Proppe wrote:Hvað sauðstu ananasinn lengi?
Það er nefninlega í honum ensím (bromelain) sem brýtur niður prótein og er notað til að tenderæsa kjöt, og það gæti mögulega haft áhrif á gerið.
Örugglega ætti það að vera í lagi ef þú sauðst hann nógu lengi til að gerilsneyða, því ensímið verður óvirkt við 65°c
Sauð hann í rúmar 15 mínútur, þannig að það ætti ekki að vera vandamál. Félagi minn í bruggklúbbnum mínum hérna hefur gert þetta áður með góðri útkomu, þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur.
Var einmitt að spá í ananasmjöð einhverntíman og las um þetta ensím þá, dáldið tricky, og það er víst sama ensím eða svipað í kíwí og papaya.
Ananas ætti ekki að vera til trafala í miði. Maður myndi jú alltaf pasteuræsa allt sem færi útí, svo maður gæti skorið hann smærra og látið sér duga að dýfa honum í heitt vatn eða virt. Eins og ég sagði, 65°c gera ensímið óvirkt á örskotsstundu, aðeins lengur fyrir lægri hita.
Svo veltur það auðvitað á magninu, en þú þyrftir sennilega slatta af ananas til að fá nógu mikið bromelain til að hafa einhver áhrif á heilbrigða gerjun.
Eina sem ég veit af eigin reynslu, er að hann getur farið illa með matarlím ef maður lætur ensímið óáreitt.
Sammála fyrri ræðumönnum, þetta lítur virkilega vel út. Eina sem ég er að pæla er hvort þú hefðir átt að tæta ananasinn niður eða skera amk smærra? Uppá að ná allri gleðinni úr bitunum
Já það er spurning hvort ég hefði átt að skera hann niður smærra, verður spennandi að sjá hversu mikið ananasbragð kemur í gegn, það var mjög sterkt fyrir gerjun, þarf að fara smakka aftur núna þegar krausenið er fallið.
Þetta er IPA með guava þykkni og Earl Gray tei! Virkilega flottur. Ætli maður fari ekki í asísku búðirnar hér að leita að inspírasjón fyrir næsta bruggi.
p.s. hafið þið rekist á svona guava þykkni, djús eða ávöxtinn sjálfan hér á landi?
Þetta er IPA með guava þykkni og Earl Gray tei! Virkilega flottur. Ætli maður fari ekki í asísku búðirnar hér að leita að inspírasjón fyrir næsta bruggi.
p.s. hafið þið rekist á svona guava þykkni, djús eða ávöxtinn sjálfan hér á landi?
Þessi hljómar vel, bragðlaukarnir mínir hata te meira en allt, þannig að ég hugsa að ég myndi sleppa því, en guava gæti passað vel, hef líka verið að spá í passionfruit, gæti komið vel út í vel humluðum bjór.
Þegar ég vann í grænmetisdeildinni í Hagkaup fyrir svona 10 árum síðan þá fengum við stundum inn Guava ávexti, og svo fékk ég einu sinni guava safa í tælensku búðinni á Suðurlandsbraut, ef hún er ennþá til.
helgibelgi wrote:Ég hef einmitt verið að skoða það að bæta ananas í bjór! Ætla líklega að bæta honum við AIPA eða APA.
Ég ætla samt líklega ekki að bæta honum við í suðu heldur bæta við í secondary eða primary eftir að aðalgerjunin er búin.
Það væri svo gaman að bera saman við þinn bjór!
Já, það væri gaman. Reyni að smygla nokkrum með mér næst þegar ég kem á klakann
Frábær, hef aldrei séð bjór klárast jafn hratt hjá mér Ætti sennilega að færa hann í uppskriftahornið, þar sem hann hlaut frábærar viðtökur hjá öllum sem smökkuðu.
Ætla einmitt að fara smella í aðra lögn á næstu dögum, mun sennilega nota US-05 ger í stað European Ale, þar sem fyrsti var í sætari kantinum fyrir minn smekk.