Hefur einhver reynt að gera sake? Mér sýnist með þessu kitti hér þá ætti að vera hægt að gera það með hráefni sem fæst á Íslandi http://visionbrewing.com" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta er dálítið nostur, en gæti verið áhugavert að prófa.
Hef bragðað sake (sem minnti mig hreinlega á góðan gambra!), en ekki grunaði mig að ferlið væri þetta umfangsmikið. Ég er ekkert nema augu og eyru núna. Mun þó ekki ríða á vaðið með tilraunir.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Sake er frábær drykkur. Í Japan eru hundruðir ef ekki þúsindir tegunda, allt frá hversdags til sérlega dýrra árgangsvína. Drukkið yfirleitt kalt úr litlum leirglösum. Frábært með öllum japönskum mat. Svo eru til útgáfur sem eru meira eins og gosdrykkir, mjög frískandi einir og sér eða með smá edamame. Í öllum helstu stórborgum er að finna flotta sakebari. Um að gera að tékka á því.