Nú fer að styttast í bjórgerðarkeppni Fágunar 2013. Þetta árið verður úrslitakvöldið haldið
laugardaginn 13. apríl
Gert er ráð fyrir að skila þurfi innsendingum fyrir 11. apríl
Sérstakur fókus verður á allar gerðir IPA í ár og verður sérstakur IPA flokkur sem allir IPA lenda í.
Hér má sjá nánari útlistun á IPA flokkunum:
http://www.bjcp.org/2008styles/style14.php" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Flokkarnir eru:
1. IPA - allar týpur af IPA
2. 5,999% alc/vol og undir
3. 6% alc/vol og yfir
Eins og fyrri ár er ein frí innsending fyrir meðlimi, en 1500 kr. á hverja innsendingu eftir það.
Einnig er frítt inn á úrslitakvöldið fyrir meðlimi en kostar 1500 kr fyrir aðra
Allt útlit er fyrir að lokakvöldið verði haldið á KEX líkt og í fyrra og við gerum ráð fyrir að hafa nóg af fríum bjór fyrir alla (að því gefnu að brugghús landsins verði jafn gjafmild og í fyrra).
Nánari upplýsingar um þennan viðburð koma í nýjum þræði á allra næstu dögum. Endilega póstið spurningum, hugmyndum hér í þráðinn ef ykkur sýnist
f.h. stjórnar
Halldór