Legg til að þið setjið hér inn gagnlegar vefsíður þegar þið dettið inn á þær. Maður er alltaf að uppgötva nýjar og góðar síður öðru hverju, og um að gera að deila þeim með hópnum. Hér þurfum við að hafa afmarkaðar reglur.
Reglur um tengla:
1. Hér á ekki að ræða neitt. Setjið bara inn slóðina og smá lýsingu á síðunni. Ef einhver vill ræða þessar síður eitthvað frekar skulum við gera það í öðrum þræði, en láta þennan standa sem gott tenglasafn og ekkert annað.
2. Setjið inn slóðina sjálfa, og tengil utan um slóðina (þá með því að velja slóðina eftir að þið skrifið hana inn og smella á
URL takkann fyrir ofan skilaboðagluggann). Látið slóðina standa í skilaboðunum, þannig að hægt sé að sjá hana áður en smellt er á tengilinn, afrita og hvaðeina, en gætið þess líka að hafa tengil. Oft er maður að vafra í tækjum þar sem ekki er hægt að afrita og líma (ég vafra til að mynda oft í iPod touch, og þar verður að vera tengill til að smella á). Að sama skapi er gott að geta afritað slóðina.
3. Setjið inn stutta lýsingu á síðunni. Annars veit maður ekki um hvað málið snýst.
4. Farið yfir það sem þegar er komið inn, svo þetta fyllist ekki af mörgum vísunum á sömu síðuna. Þetta á að vera gagnlegur vettvangur fyrir fólk í upplýsingaleit.
Ég ríð þá á vaðið með það sem ég man eftir í svipinn. Ég er ekki með tenglasafnið mitt við höndina.
http://www.howtobrew.com/ - Mögulega besta heimild um bjórgerð á vefnum. Heil bók, í ókeypis vefútgáfu, eftir John Palmer. Hann fer yfir allt frá einföldustu mynd extract bjórgerðar til flóknustu aðferða við all grain bjórgerð. Frábær bók sem svarar flestum spurningum sem vakna. Ég lít reglulega í þessa bók til að glöggva mig á smáatriðum, þegar ég er óviss um eitthvað.
http://www.basicbrewing.com/ - Mjög skemmtileg síða með hlaðvarpsþáttum (podcast), bæði á hljóð- og myndbandsformi. Hljóðvarpsþættirnir eru mjög gagnlegir, en stundum ansi tæknilegir. Myndböndin eru oftar en ekki sprenghlægileg, og mjög forvitnileg. Þarna er líka að finna vefverslun með kennslumyndböndum og fleiru, og smá uppskriftabanka.
http://www.byo.com/ - Vefsíða
Brew Your Own tímaritsins, sem fjallar eingöngu um heimabjórgerð. Frábært tímarit, og á síðunni þeirra er að finna urmul greina og uppskrifta. Þarna er hægt að gleyma sér tímunum saman.
http://www.brew365.com/ - Ágætis vefsíða með litlu greinasafni. Ég kann ágætlega við þessa síðu, þar sem hún hefur að geyma stuttar og einfaldar greinar um hin og þessi hráefni - humla, korn o.s.frv. - og er með ágætis uppskriftabanka. Þarna er líka fín uppskrift að candi sykri, ef einhver hefur áhuga.
http://www.mrmalty.com/calc/calc.html - Gerreiknivél. Þetta er bráðnauðsynlegt tól ef maður er farinn út í stærri bjóra. Hér slær maður inn upplýsingar um OG og þessháttar og fær svart á hvítu hversu mikið ger maður skyldi nota til að bjórinn komi sem best út. Góð leið til að koma í veg fyrir gerjunarstopp eða óæskilegt aukabragð vegna of mikils eða lítils gers. Virkar bæði fyrir þurrger og fljótandi.
http://www.rackers.org/calcs.shtml - Ýmsar gagnlegar reiknivélar. Reiknivél til að sjá hversu stórt meskiker maður þarf miðað við kornmagn, hversu heitt vatn maður þarf fyrir meskingu, o.fl.
http://www.beertools.com/ - Þetta er vefsíða fyrir hugbúnað sem ég á og nota til að reikna út uppskriftir. Ég er ekki að auglýsa forritið, en tek þó fram að það er mjög gagnlegt. Á síðunni er hins vegar hægt að fá ókeypis aðgang að takmarkaðri uppskriftareiknivél, og nokkrum öðrum reiknvélum, og þar er líka brjálæðislegur uppskriftabanki sem gaman er að fletta í gegnum. Auk þess eru þarna upplýsingar um nánast hvaða hráefni sem maður gæti notað í bjór, sem er mjög gagnlegt ef maður rekst á hráefni sem maður hefur ekki reynslu af.
http://www.northernbrewer.com/ Vefverzlun í Ameríku - Sérhæfir sig í bjórgerð
http://www.morebeer.com Vefverzlun í Ameríku - Sérhæfir sig í bjórgerð
http://www.midwestsupplies.com Vefverzlun í Ameríku - Bæði efni til víngerðar & bjórgerðar
http://www.humle.se/webstore Sænsk vefverzlun. (flott úrval af geri frá wyeast ameríku)
http://www.maltbazaren.dk/shop/frontpage.html Dönsk vefverzlun. - Sérhæfa sig í bjórgerð
http://www.hjemmeproduktion.dk/ Dönsk vefverzlun með tólum og efnum fyrir heimilisiðnað.
http://www.vinogbar.no/ Norsk vefverzlun, tól tæki og efni fyrir bruggið.
http://www.petit-agentur.no/ Norsk vefverzlun, humlar, malt ger og kryd.. ýmislegt annað.
http://www.maltbua.no/ Norsk vefverzlun, humlar, malt ger og fleira.
http://www.brygging.no/butikken.aspx Norsk vefverzlun, humlar, malt ger og fleira
http://www.hopshopuk.com/ Bresk vefverzlun - Vín & bjórgerðarefni einnig eru þeir með tól í bruggun.
http://www.pgw.se Sænsk vefverzlun, mikið úrval hjá þessum dúddum, bjórgerð, essence, humlar, malt...
http://www.hjemmebryggeren.dk Dönsk vefverzlun, malt humlar ger (safale)
http://www.brygladen.dk/ Dönsk vefverzlun. Flott úrval af humlum
http://www.beeradvocate.com/ Mjög aktív amerísk spjallsíða.
http://www.homebrewtalk.com Spjallsíða lík þessari, fólk allstaðar frá heiminum skiptist á fróðleik þarna.
http://www.homebrewtalk.com/wiki/index.php/Main_Page Wiki síða homebrewtalk, mikið um fróðleik þarna.
http://www.brewingkb.com (Brewing knowledgebase) Heimabrugg forum
http://gamlabokin.bjorbok.net/A.htm Heimasíða tileinkuð bjórnum(gamla útgáfan), einum elsta drykk veraldar - R.Freyr Rúnarsson
http://www.bjorbok.net Heimasíða tileinkuð bjórnum, einum elsta drykk veraldar - R.Freyr Rúnarsson
http://oz.craftbrewer.org/Library - Áströlsk síða, mikið af fróðleik þarna á ferð, myndir og fleira.
http://www.mail-archive.com/brygforum@l ... ndbryg.dk/ Danskt brugg forum
http://www.mrmalty.com/ - Heimasíða Jamil Zainasheff (homebrew celeb). Nokkuð af gagnlegum upplýsingum.
http://www.babblebelt.com/ - Umræðusíða um allt sem að tengist bjór og Belgíu.
http://www.brewlikeamonk.com/ - Bloggsíða Stan Hieronymus höfundur bókarinnar "Brew Like A Monk", ein af uppáhaldsbókunum mínum.
http://www.homebrewchef.com/ - Sean Paxton, kokkur og áhugabruggari gefur upp uppskriftir að bjór og einnig uppskriftir og ábendingar um matargerð með bjór.
Ég man ekki eftir fleiri vefsíðum í svipinn, en set vafalaust fleira hingað inn þegar fram líða stundir. Hvet alla til að setja inn tengla á gagnlegar síður.