Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Ætlum að brugga einn IPA í dag sem er þegar kominn með nafn. Nafnið var nokkuð automatíst þar sem sagan segir að uppskriftin sé "straumlínulagaðri en Þórunn Antonía" Gunnar Óli á heiðurinn af þessari uppskrift, en uppskriftin ásamt miða í viðhengi
Það var mikill barningur að sippa virtinum yfir í carboy þar sem humlablöðin voru svo stór og fyrirferðamikil að það stíflaðist alltaf hjá okkur. Þetta tókst þó á endanum og tókst okkur meira að segja að stífla niðurfallið
Kældum í gærkveldi og skelltum í gerjum og aðeins byrjað að bubbla núna
þessi var ekki sem verstur. Mætti þó vera betri, ætlum að gera hann aftur á annan í jólum og þá með smá breytingu. Aðal breytingin er samt í því að við ætlum að sleppa chinook og taka cascade í staðinn. Upphaflega planið var að setja columbus í staðinn en hugsa við prófum cascade fyrst.