Mig langaði bara að vekja upp gamla umræðu um nýtt útlit fyrir síðuna. Mig minnir að einhverjum mánudagsfundinum hafi þetta verið rætt stuttlega og ég varð mjög spenntur. Síðan þá hef ég ekki séð neitt fjallað um þetta.
Ég ákvað að kíkja á sænsku útgáfuna af fágun: http://shbf.se/bryggaren/index.php" onclick="window.open(this.href);return false;
og eins og þið sjáið er merkið þeirra flott og mun bjórtengdara en okkar (imho).
Hvað finnst ykkur? Eigum við ekki að reyna að lappa upp á útlitið eða?
(Þó finnst mér appelsínuguli liturinn mjög kósý)
Já ég er sammála með appelsínugula kassana, þeir eru einfaldlega of góðir!
Ef þú býrð til aðgang að sænsku síðunni geturðu séð að þeir eru með appelsínugulukassana líka, en í öðru formi. Þar birtast ólesnir þræðir með fylltu glasi af bjór (appelsínugulur bjór) og verður síðan tómt glas þegar þú hefur lest þráðinn. Þetta finnst mér alger snilld!
helgibelgi wrote:Já ég er sammála með appelsínugula kassana, þeir eru einfaldlega of góðir!

Mér þykir það glatað.. Pínu sniðugt í fyrsta skipti, en svo bara gimmick. Ég fíla clean útlit frekar en fullt af litlum gimmicks hér og þar sem hjálpa í raun ekkert framyfir hitt.

Einmitt. Einfalt, stílhreint og fágað. Hingað koma fróðleiks- og bjórþyrstir menn, ekki grafískir hönnuðir í leit að einhverju til að gagnrýna.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Ég tel að logo eigi ekki að fara í einhverja eina sérstaka gerjunarátt frekar en aðra þar sem að fágun stendur fyrir gerjun á matvælum en ekki einungis gerjun á humluðum maltvökva.
Ég er alls ekki grafískur hönnuður og var ekki að gagnrýna neitt, bara datt í hug að fólk vildi kannski breyta útlitinu eitthvað, þyrfti ekki að vera flókið
Ég trúi varla að það sé nokkurt leyndarmál, en á döfinni er að smíða nýjan vef. phpBB verður skipt út fyrir annað, og öll gögn verða flutt yfir til að takmarka allt rask.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
helgibelgi wrote:Nú jæja, þetta var nú bara hugmynd.
Ég er alls ekki grafískur hönnuður og var ekki að gagnrýna neitt, bara datt í hug að fólk vildi kannski breyta útlitinu eitthvað, þyrfti ekki að vera flókið
Djók Ég var auðvitað bara að tala fyrir sjálfan mig og ekkert að því að henda fram hugmyndum
Um að gera að gera litlar krúsidúllur hér og þar, annað veifið. Það bara tekur sig ekki að fríkka upp á núverandi vef, þegar nýr er rétt handan við sjónarhornið.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Ahh ok kúl, vissi ekki (eða hafði gleymt) að það væri að koma ný síða. Þá bíður maður bara spenntur eftir að sjá hana. Verður hún eitthvað útlitslega öðruvísi en þessi?
"Allt í gerjun". Nýtt lógó hefur þegar verið útbúið, en það fellur engan veginn inn í núverandi mynd vefsins. Þar sem ég er ábyrgur fyrir þessum hluta, játa ég skömmina upp á mig.
Þannig er að við ætlum að koma upp fjölbreyttari vef með fleiri möguleikum og ívið nýgræðlingavænni. Það hefði átt að ganga snurðulaust fyrir sig, en eitt og annað hefur hindrað mig í að koma því öllu frá mér. Látum nægja að segja að nýja kerfið er enn í "beta" prófunum og stuðningur til að importa gögnunum úr þessari tilteknu útgáfu phpBB er vafasamur í besta falli.
Ég skammast mín ósköpin öll fyrir dráttinn á þessu. Þörf og góð áminning!
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Ekki beint, en þó. Nýja kerfið er fullbúið CMS, svo áhugasamir geta vissulega sent inn greinar og efni, haft sín persónulegu blogg og hvað annað. Mætti þess vegna hafa óritskoðað efnissafn fyrir meðlimi spjallsins og/eða fullgilda meðlimi félagsins - sem er eins gott og wiki, nema aðgangsstýrt (nóg að gera í a berjast gegn spambottunum fyrir, hvort eð er).
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
bergrisi wrote:Ætla að vera leiðinlegi gaurinn. Eitthvað að frétta.
Ég spyr bara fyrir forvitnissakir. Er ánægður með þetta eins og er.
Finnst stundum gaman að lesa gamla þræði hérna og rakst á þetta.
Heyrðu, við erum að skoða þetta mál. Finnst samt líklegt að spjallið muni haldast óbreytt en líklega kemur ný forsíða. Svo er einnig búið að henda upp wiki-síðu sem þarf bara að fylla af fróðleik. Planið er að funda um þetta mjög fljótlega og keyra þetta í gang!