Ég er hæstánægður með þennan bjór frá Ölvisholti. Það getur tekið svolítinn tíma til þess að venja bragðlaukana á sterka, aggressíva bjóra. Ég man þegar að ég smakkaði minn fyrsta bjór, Budweiser Budvar, að ég komst ekki yfir hvað það var beiskt
Ég man svo líka þegar að ég smakkaði IPA fyrst , ég hélt ég myndi deyja það var svo beiskt, en það breyttist fljótt. Bragðskyn manns er sífellt að breytast og þróast.
Þið getið séð dóminn minn hér:
http://beeradvocate.com/beer/profile/17208/46273
Þegar að ég sest niður til þess að analýsera og dæma bjór reyni ég alltaf að vera hlutlaus. En hlutleysi er ekki til. T.d. er russian imperial stout einn af mínum uppáhalds stílum auk þess sem að mér fannst að frumkvæði og listrænt ágengi Ölvisholts verðskulda góða einkunn.
Ég er ekki sammála Eyvindi með að alkóhólið sé galli. Þegar að um svona sterkan bjór er að ræða er mjög erfitt að komast hjá því. BJCP reglurnar leyfa einnig alkóhól í bragð og lykt fyrir þennan stíl og mér fannst það ekki vera vera í svo miklu magni að að það stingi í stúf. Ég hefði persónulega viljað meiri reykt bragð, þar sem að rauchbier er í miklu uppáháldi hjá mér (og er uppáhalds bjórstíll konunnar minnar
) en það væri nú ekki hægt vegna þess að allt base maltið í þessum bjór er reykt!