Keypt Snorra um daginn í Fríhöfninni. Var búinn að smakka hann einusinni áður og fannst hann soldið venjulegur. En nú smakkaði ég hann vel og vandlega og kemur blóðbergið soldið skemmtilega út. Léttur keimur og virkaði soldið slunginn. Get alveg mælt með honum.
snorri.jpg (35.2 KiB) Viewed 10927 times
Smakkaði einnig Lúðvík í gær á Vínbarnum. Mjög ánægður með hann en var að smakka hann eftir að ég hafði drukkið nokkra aðra bjóra. Ætla að kaupa hann og drekka hann í friði og njóta hans hér heima.
ludvik.jpg (37.02 KiB) Viewed 10927 times
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Ég fann það að Snorra þarf að drekka í volgari kanntinum, þá bragðast hann ótrúlega vel.
En með Lúðvík, þá fannst mér hann of maltaður og sætur. Ég er þó fullviss um að hann verði búinn að ná sinni dýrð eftir árs geymslu, því keypti ég kippu til þess að geyma
Mbk. Gísli
Fyrirhugað: Black IPA, 15%+ Stout og fleira
Í gerjun: IPA, Súr Saison
Í secondary: Enskur Barley Wine
Á dælu : Hulk vs. Simcoe pale ale
Á flöskum: Fabio - Habanero pale ale, Bloody Frenchmen with their chocolat mousse - Súkkulaðistout
#17
Gott að ég er ekki einn um þetta, ég bragðaði hann rúmlega 1 viku gamlan og hann var bragðlaus en samt skemmtilega sýrður. Geymdi restina af kassanum í 4 vikur og þá kom þetta skemmtilega krydd bragð í ljós. Flottur bjór.