Sælir smekkmenn
Jæja, eftir að hafa skoðað þetta spjallborð í þónokkurn tíma ákvað ég ásamt 2 öðrum vinum mínum að byrja að koma okkur upp búnað og byrja að brugga öl. Litla bruggstofan okkar hefur fengið nafnið Bakkabrugg.
Við eigum enn eftir að setja í fyrsta lögg en við ákváðum að fara í all grain strax frá byrjun, en ég býst við að fyrsti bjórinn fari í gerjun á næstu 2 vikum eða svo.
Sjálfur er ég mikill bjórmaður og hef upp á síðkastið verið með svokallaðan sunnudagsbjór, þ.e. reynt að smakka nýja tegund á hverjum sunnudegi. Einnig bjó ég í Danmörk um tíð og sótti mikið ölstofurnar þar, eins og t.d. Charlies og Mikkeller.
Við ákváðum að byrja smátt og smíðuðum því 30l suðutank, en það verður auðvelt að stækka seinna ef okkur þykir þurfa.
Þannig að nú hlakka ég bara til að komast í að brugga eigið öl og taka þátt í umræðum hér. Og því segi ég bara skál með Punk IPA í glasi.