Félagi minn bennti mér á þessa síðu og ég kom á síðustu bjórgerðarkeppni (28.april).
Ég er fyrst og fremst áhugamaður um drykkju á bjór en eftir keppnina sé ég mér ekki fært annað en að undirbúa bruggun á eigin spítur.
Er ekki vel að því kominn eins og er en góðir hlutir gerast hægt og hlakka til að baða mig upplýsingum og hafa aðgang að fólki eins og ykkur. Þvílkt magn af fróðleik sem er að finna hérna og þvílíkar útfærslur sem komnar eru (Snillingar).
Hlakka til að komast í leikinn og sýna hvað í mér býr.
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
Mæli með BIAB fyrir byrjanda eins og þig (og mig ): þarft ekki nema poka undir kornið í meskingu, síðan fjarlægirðu hann og sýður. Það gerist ekki einfaldara! Það fæst held ég allt hjá Hrafnkatli á brew.is...
Velkominn Davíð og takk fyrir síðast, þetta kvöld var alls ekki sem verst. Láttu endilega eins og heima hjá þér og gramsaðu að vild.
Vertu óhræddur við að spyrja ef þú hefur einhverjar spurningar.