APA

Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Post Reply
Hekk
Kraftagerill
Posts: 98
Joined: 4. Jul 2011 13:38

APA

Post by Hekk »

Ég ákvað að prufa að búa til fölöl með einungis einni tegund af malti (Pale ale) og einni humla tegund (Cascade).

5kg pale ale malt

Meski hitastig 65°C sem reyndar féll í 62°C á 1,5 klst.

Ég hef ekki aðstæður til að kæla virtinn og því hef ég verið að prufa mig áfram með humla íbætur.

bætti humlum í sem FWH - 15g cascade

svo 30g þegar 40 mín voru eftir

og önnur 30g þegar 5 mín voru eftir ásamt 1 whirlfloc.
Virturinn stóð í suðutunnuni í sólarhring og kólnaði, gerjun var svo komin í gang daginn eftir að gerið var sett út í.

Ger: Safale-05
OG 1.054

í dag er þetta komið í 1.010, sýnið bragðaðist vel en er aðeins bitrara en ég ætlaði mér.

Það var hinsvegar eitt sem kom mér á óvart áðan, ofan á bjórnum er þykkt lag af þéttri ljósri froðu sem féll að litlum hluta til botns þegar ég færði fötuna. Ég hef aldrei lent í þessu áður.
Þegar ég setti gerið út í hristi ég vel og það myndaðist talsverð froða, ég gerja í fötu og því sá ég ekki hvort hún féll saman og varð svo að þessari þéttu í framhaldinu.

Hafið þið séð svona áður?

Ég ætlaði að fleyta honum á aðra fötu á morgun og þurrhumla, ætli það sé nokkuð að því?
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: APA

Post by sigurdur »

Ég hef verið með svona froðuhaus á bjór gerjuðum með US-05.
Eina sem ég hef gert er að stugga aðeins við fatinu eða nota sótthreinsað áhald til að brjóta upp froðuna.

Þú getur fleytt yfir í annað ílát, en ég myndi persónulega bara henda humlunum í "primary" nema þú ætlir að eiga gerkökuna.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: APA

Post by hrafnkell »

Þetta lítur fínt út hjá þér. Ég set smá spurningamerki við humlaíbæturnar
Hekk wrote:bætti humlum í sem FWH - 15g cascade

svo 30g þegar 40 mín voru eftir
40mín humlar gera lítið annað en að bæta við biturleika, færð lítið sem ekkert bragð eða lykt úr þeim. Myndi seinka seinni viðbótinni næst og jafnvel hafa meira af henni.

Sjá hér:
Image
http://www.brewsupplies.com/hop_characteristics.htm" onclick="window.open(this.href);return false;
Hekk
Kraftagerill
Posts: 98
Joined: 4. Jul 2011 13:38

Re: APA

Post by Hekk »

Ég var að reyna að fara eftir töflu sem ég fann á homebrewtalk
Image

Ég er samt klárlega að fá meiri biturleika en áætlað er.

Ég prufa næst að seinka 40 mín humlunum, spurning líka um að fara að fjárfesta í kælispíral og þá er málið dautt.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: APA

Post by hrafnkell »

Fyrst þú ert með no chill þá ættu viðbæturnar í raun að vera enn seinna en þú gerðir. Líklega eitthvað mislesið chartið :)

Þetta chart segir í raun sama og línuritið sem ég póstaði. Fínar upplýsingar til að nota sem viðmið.
Hekk
Kraftagerill
Posts: 98
Joined: 4. Jul 2011 13:38

Re: APA

Post by Hekk »

uppskriftin var upprunalega svona
30g - 60 mín
15g - 30 mín
15g - 15 mín
15g - Dry
IBU átti að vera 28
samkvæmt öllu

ég breytti því út frá töflunni í:
15g - FWH
30g - 40 mín
30g - 5 mín

svo rest þurrhumlað

Spurning um að færa 40 mín enn aftar eins og þú ert að benda á.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: APA

Post by hrafnkell »

Ég tek það fram að það er ekkert sem maður á að gera, allt spurning um smekk :)

En í APA þá er venjulega töluverð humlalykt og bragð, sem þýðir að þú hefðir þurft að setja 40mín humlana í í kringum 5mín og þurrhumla smávegis.
Hekk
Kraftagerill
Posts: 98
Joined: 4. Jul 2011 13:38

Re: APA

Post by Hekk »

Það var einmitt það sem ég ætlaði að ná fram, tókst bara ekki alveg í þetta skiptið.
Post Reply