Enskur bitter úr extrakti

Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Post Reply
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Enskur bitter úr extrakti

Post by Classic »

Smá "premature" afgangabrugg. Langaði að gera lítinn bjór þar sem minn síðasti var í stærra lagi. Átti afgang af Carapils síðan guð-má-vita-hvenær, og eftir miklar vangaveltur yfir framtíðarplönum bæði í Excel og Brewtarget, og þrjár viktanir á kornlagernum til að vera viss, sá ég fram á að geta mætt því með sama magni af súkkulaðimalti, og 40 grömmum af Fuggles og Celeia. Sennilega ekki alveg trúr stílnum, en þó innan marka í öllum tölum og ég hef góða reynslu af því að brugga úr "afgöngum", svo ég ákvað bara að láta slag standa.

Code: Select all

 Nafnlaus bitter - Standard/Ordinary Bitter
================================================================================
Batch Size: 25.000 L
Boil Size: 11.000 L
Boil Time: 1.000 hr
Efficiency: 70%
OG: 1.034
FG: 1.009
ABV: 3.4%
Bitterness: 27.2 IBUs (Rager)
Color: 9 SRM (Morey)

Fermentables
================================================================================
                Name        Type    Amount Mashed Late Yield Color
   Light Dry Extract Dry Extract  1.000 kg     No   No   97%   8 L
  Cara-Pils/Dextrine       Grain  55.000 g     No   No   72%   2 L
 Chocolate Malt (UK)       Grain  55.000 g     No   No   73% 450 L
   Light Dry Extract Dry Extract  1.000 kg     No  Yes   97%   8 L
   Amber Dry Extract Dry Extract 250.000 g     No  Yes   95%  13 L
Total grain: 2.360 kg

Hops
================================================================================
             Name Alpha   Amount  Use       Time   Form  IBU
 Styrian Goldings  4.6% 40.000 g Boil   1.000 hr Pellet 22.7
          Fuggles  4.7% 20.000 g Boil 10.000 min Pellet  2.5
          Fuggles  4.7% 20.000 g Boil  1.000 min Pellet  2.0

Misc
================================================================================
       Name   Type  Use   Amount       Time
 Irish Moss Fining Boil 5.000 mL 15.000 min

Yeast
================================================================================
        Name Type Form   Amount   Stage
 Safale S-04  Ale  Dry 11.000 g Primary
Uppskriftin segir 25l, en ég endaði í um 27, og samt aðeins yfir í OG, 1,035.

Ég veit að miðarnir eru skemmtilegasti þátturinn í "Hvað er verið að brugga"-þráðum frá mér, en ég hef bara ekki fengið andann yfir mig þegar kemur að nafni eða miðahönnun (er opinn fyrir uppástungum), svo ég verð að hryggja ykkur með því að slíkt bíður betri tíma...
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Enskur bitter úr extrakti

Post by sigurdur »

Skemmtilegur bjór. :)
Endilega láttu okkur vita hvernig þetta magn af síðhumla Fuggles kemur út.
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Enskur bitter úr extrakti

Post by Classic »

Kominn á flöskur og kominn með nafn. Rauða hænan, í höfuðið á litlu gulu hænunni (sem á engilsaxnesku er rauð eins og bjórinn). Tileinkað aðstoðarmönnum mínum sem fengu boðun í átöppun í tölvupósti með 5 daga fyrirvara en hvorugur svaraði fyrr en ég hringdi í þá deginum fyrir átöppun. Annar mætti, svo ég stóð sem betur fer ekki aleinn hérna, en nafnið er samt gott.

Kæmist sennilega ekki inn í ÁTVR með þennan miða:
Image
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Enskur bitter úr extrakti

Post by bergrisi »

Flottur miði.

Kominn tími til að maður geri eitthvað svona.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Enskur bitter úr extrakti

Post by Classic »

Mér fannst það viðeigandi áskorun í kjölfarið á IIPA sem fór upp í 1,088 í OG og 9,1 í áfengisprósentu, að sjá hver útkoman væri reyndi maður að fara í hina áttina. 1,035 varð að 3,5 prósentum, og bragðast ágætlega af mælisýninu að dæma. Bitter má víst ekki verða of kaldur, sennilega er málið að kæla hann í ostahellinum ef ég verð ekki búinn að fylla hann þegar þessi verður tilbúinn til neyslu :P
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
gugguson
Gáfnagerill
Posts: 215
Joined: 26. Mar 2011 14:55
Location: Reykjavik

Re: Enskur bitter úr extrakti

Post by gugguson »

Frábær miði og gaman að sjá lýsingu á geimslu og hvernig á að hella honum.
Gerandi Bruggfélag

Næst: Carlsberg Clone, Biere de Garde, Hlemmur
Í gerjun: Dubbel úr BCS, Hlemmur III (Irish red)
Á flösku: Fölvi (Þurrhumlaður Pale Ale)
Post Reply