Útlit: Djúp djúp rauður, mjög dökkur. Ljósbrúnn haus stoppar ekki mjög lengi við, en liggur létt yfir yfirborði. Lykt: Banani, örlítið ristað malt, örlítið kristalmalt. Bragð: Ristaður og reyktur .Örlítill banani. Langt ristað eftirbragð og ristuð beiskja. Örlítil sæta. Ágæt fylling. Í munni: Silkimjúkur með ristuðum og reyktum fíling. Kolsýran myndar silkimjúka áferð og kitlar tunguna örlítið. Mjög skemmtileg upplifun. Heild: Mjög fínn mildur stout, en bananinn á ekki heima þarna. Ofboðslega góður. Mæli ég með bjórnum? Fyrst að hann er löngu uppseldur, þá mæli ég með að þið prófið hann ef þið hafið geymt hann frá jólum 2010.
Ég er að sötra einn núna úr 2011 árganginum. Ætla ekki að þykjast kunna eitthvað að dæma bjóra og koma með lýsingu, en finnst þetta vera feikilega góður. En ég verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með eitt! Það var rið á tappanum innaná...
Hef aldrei lent í því áður og ekki viss um hvort þetta sé bara smámunasemi í mér. En langaði að heyra hvað ykkur finnst um þetta og hvort þið hafið yfir höfuð lent í þessu?
Í gerjun: Munich Helles BIAB (gerjað með ölgeri WB06)
Á flöskum: APA bee cave BIAB, Hvítur sloppur BIAB
Á óskalistanum: Jólabjór, Lager, Hafrastout, Irish red ale, IPA, Leffe clone, vienna og partu-gyle
atlios wrote:Ég er að sötra einn núna úr 2011 árganginum. Ætla ekki að þykjast kunna eitthvað að dæma bjóra og koma með lýsingu, en finnst þetta vera feikilega góður. En ég verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með eitt! Það var rið á tappanum innaná...
Hef aldrei lent í því áður og ekki viss um hvort þetta sé bara smámunasemi í mér. En langaði að heyra hvað ykkur finnst um þetta og hvort þið hafið yfir höfuð lent í þessu?
Ég hef lent í þessu hjá mér, en þá bara við endann á tappanum en ekki bjórmegin í tappanum (þar ætti að vera plasthúð).
Það kemur nú samt ekki þessum bjór við og slík umræða ætti heima frekar á almenna spjallinu.