Veit einhver um vefsíðu þar sem ég get slegið inn hráefnin sem ég á og fengið til baka uppskriftir sem passa við efnislistann?
Ég myndi t.d. slá in 2-3 korn tegundir, 2-3 humlategundir og eitthvað af geri og fengi út a) uppskriftir sem innihalda bara þessi hráefni og b) innihalda eitthvað af þessum hráefnum en kannski þarf smá viðbót.
Eitthvað í ætti við t.d. http://www.recipematcher.com/" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false; eða http://www.supercook.com/" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Ef þetta er ekki til þá gæti ég vel hugsað mér að útbúa svona vefsíðu.
Mother.of.god... Hvar geri ég þetta í beersmith? Notar hún uppskriftir sem eru í beersmith grunninum eða tengist hún alnetinu í leit sinni að uppskriftum?
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
Þessi hugbúnaður er til, í það minnsta einhvað í áttina að þessu sem þú talar um.
Webtender.com er t.d. með svona reiknivél þar sem maður setur inn hvaða áfengi maður á og fær út kokteil uppskriftir
Sá einhverntíman svipað á lífstíls/heilsuræktar síðu. Þar setti maður inn ýmsan mat og fæðubótarefni og fékk uppskriftir og tillögur af matarplani. Get bara ómögulega munað hvaða síða það var, enda nokkur ár síðan.
gunnarolis wrote:Mother.of.god... Hvar geri ég þetta í beersmith? Notar hún uppskriftir sem eru í beersmith grunninum eða tengist hún alnetinu í leit sinni að uppskriftum?
Humm... Ég finn þetta ekki í BeerSmith 2! Í fyrri útgáfunni var hægt að leita að uppskriftum (í BeerSmith grunninum á tölvunni, ekki á netinu). Þú gast þá tínt til hluti úr "inventory", og BeerSmith fann uppskriftir eftir því. Þeir eyðilögðu þetta í útgáfu 2, skammirnar!
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.