Októberfundur Fágunar verður að þessu sinni haldinn í Keflavík hjá honum Rúnari (bergrisi). Í bruggskúrnum sínum er Rúnar með billiardborð og píluspjald (ásamt bruggbúnaði býst ég við
)
Einnig ætlar hann að hafa eitthvað skemmtilegt úrval af bjór til að leyfa okkur að smakka. Menn eru hvattir til að taka með sér eitthvað til að gefa með sér, þó það sé að sjálfsögðu ekkert skilyrði.
Til að auðvelda mönnum að komast í sveitina hefur Fágun pantað rútu fyrir mannskapinn og að sjálfsögðu munu félagsmenn njóta sérkjara.
Verð fyrir rútu:
Félagsmenn: 1.000 kr.
Allir aðrir: 2.000 kr.
Fjöldi takmarkast við 19 manns sökum stærðar/smæðar rútunnar.
Lagt verður af stað kl. 19.30 frá BSÍ, mánudaginn 3. október. Lagt verður af stað í bæinn aftur (til BSÍ) kl. 23.45.
Greiða skal inn á reikning 0323-26-63041, kennitala 6304102230, fyrir lok föstudagsins 30. september og senda kvittun með notandanafni á
pontun.fagun@gmail.com
Eina leiðin til að fá staðfest sæti er að borga, þannig að því fyrr því betra
PS. Ef menn vilja nýta tækifærið og skrá sig í félagið, bendi ég á
skráningarþráðinn
- - - - - - - - - -
Nýja upplýsingar
1. Rútan leggur af stað frá BSÍ 19:30 en stoppar í Hamraborg (+5 min), Bitabæ (+10 min) og N1 Lækjargötu (+15 min)
2. Til að auðvelda skráningu nægir að senda tölvupóst á
pontun.fagun@gmail.com eða senda skilaboð til ulfar á síðunni og mæta með pening í rútuna.