Hann Rúnar (bergrisi) hefur boðist til að halda mánudagsfund októbermánaðar heima hjá sér í Keflavík. Í bruggskúrnum sínum er hann með billiardborð og píluspjald (ásamt bruggbúnaði býst ég við
)
Ef þetta leggst vel í menn og þáttaka er næg mun Fágun athuga með að leigja rútu og fá þá fullgildir félagsmenn að sjálfsögðu sérstakt félagaverð.
Rúnar segist geta tekið við í kringum 20 manns í man cave-ið sitt og það væri frábært að ná þeim fjölda til að fá betri díl á rútu.
Gert er ráð fyrir að leggja af stað frá Reykjavík um kl. 19.30 þann 3. október og vera komnir í bæinn rétt upp úr miðnætti.
Látið endilega vita hér í þræðinum hvort þið hafið áhuga á að mæta.
Ath. skráning hér í þráðinn er ekki bindandi.