Heil og Sæl
Ég heiti Hjálmar og er ættaður að vestan.
Ég er búinn að vera smakka , drekka bjór síðan hann var seldur í ríkinu.
Núna í gær lét ég verða af því að prufa í það minnsta það allra einfaldasta , keypti s.s bjórkit frá europris.Og er ég búinn að hella þessu saman og bublið byrjað.
Veit svosem ekkert hvernig þetta endar , góður bjór slæmur bjór skiptir ekki öllu.Ég er allavegana í það minnsta búinn / byrjaður á minni framleiðslu og þykir mér bara nokkuð vænt um þetta litla verkefni
Ég starfa hjá samheitalyfjafyrirtækinu Actavis og þar er önnur framleiðsla í gangi... ekki bjór..
Allavegna það er gaman og gott að vera kominn á stað með lítið verkefni og er ég þegar byrjaður á því næsta ,, þar að segja svona farinn að kynna mér aðeins hvernig og hvað þarf til að gera þetta svona "alvöru "
Þakka ég stjórnendum síðunar að hafa komið þessu " samfélagi" svona vel á veg..
kv
Hjálmar