Loksins er ég búinn að skrá mig á þetta spjall. Búinn að fylgjast með því í dágóðan tíma. Best að byrja á því að kynna sig.
Andri heiti ég og byrjaði á í febrúar að búa til vín frá ámunni. Búinn að gera í samvinnu með pabba 4 lagnir, 2 rauðvín (amarone og valpolicella) og 2 hvítvína (french chardonney og gewurstraminer) frá ámunni. Þetta heppnaðist bara ljómandi vel og vakti áhuga á því að búa til bjór.
Fékk bróðir minn með í það batterí og við byrjuðum á því að kaupa svona beer kit og prófa það, en það var algjör viðbjóður og sit ég eftir með 2 kassa af gerdjús dauðast sem ég verð eiginlega bara að hella í vaskinn bráðum enda ódrykkjandi að mínu mati. Við gáfust þó ekki upp á bjórnum heldur keyptum startpakka hjá hrafnkeli á brew.is og höfum gert IPA og APA uppskriftirnar hans, og heppnaðist það alveg frábærlega. Nú er hinsvegar kominn tími til að gera frumtilraun til að gera góðan double ipa og erum við búnir að kaupa hráefni og erum að vinna í að fínisera uppskriftina með hjálp beersmith.
Svo verð ég nú líka að minnast á að ég vinn hjá Járn og Gler sem er innflytjandi af Mikkeller bjórunum í ríkinu og í gær komu 4 súper góðir og spennandi bjórar í ríkið frá þeim - Þeir áttu að koma fyrsta sept en ég sá þá allavega í skútuvoginum í gær. Þeir heita: USAlive! , Koppi IPA, Monk's elixir og Gypsy Juice. Mæli með að þið smakkið