brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Hér geta fagaðilar auglýst allt er viðkemur gerjun sér að endurgjaldslausu. Skilyrði er að þetta sé tengt áhugamáli okkar allra.
Post Reply
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by halldor »

hrafnkell wrote:Ný sending af korni og humlum væntanleg í næstu viku :)

Nýjir humlar:
Citra
Columbus

Nýtt korn
Roasted barley
Gríðarlega spennandi!
Snilld
Ég væri til í að taka kíló af Citra og kíló af Columbus :)
Gætirðu vacuum pakkað í minni pakkningar?
Svo er lengi búið að vanta Roasted Barley á klakann...
Plimmó Brugghús
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Lítið mál að vakúmpakka - hvað þurfa pakkningarnar að vera stórar?


Fyrir þá sem vantar að versla hjá mér í dag þá verð ég því miður eitthvað lítið við. Hringið samt í mig og við finnum einhvern góðan tíma til að hittast.
User avatar
atlios
Villigerill
Posts: 45
Joined: 4. Feb 2011 01:43

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by atlios »

Hvað helduru að hveitimaltið klárist fljótt? Ef það fer fljótt geturu tekið frá fyrir mig 2 kíló?... Ég er nefnilega að fara vestur á ísafjörð á morgun og verð alveg fram yfir páska og kemst ekki í að versla hjá þér í dag :oops:
Í gerjun: Munich Helles BIAB (gerjað með ölgeri WB06)
Á flöskum: APA bee cave BIAB, Hvítur sloppur BIAB
Á óskalistanum: Jólabjór, Lager, Hafrastout, Irish red ale, IPA, Leffe clone, vienna og partu-gyle
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

atlios wrote:Hvað helduru að hveitimaltið klárist fljótt? Ef það fer fljótt geturu tekið frá fyrir mig 2 kíló?... Ég er nefnilega að fara vestur á ísafjörð á morgun og verð alveg fram yfir páska og kemst ekki í að versla hjá þér í dag :oops:
Eg myndi ekki hafa miklar ahyggjur af thvi
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Eg verd vid a milli 11 og ad verda 13 i dag.
User avatar
atax1c
Gáfnagerill
Posts: 247
Joined: 17. Apr 2010 18:42

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by atax1c »

Fékkstu ekki meira pilsner malt ? http://www.brew.is/oc/Korn/Premium_Pilsner" onclick="window.open(this.href);return false;
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

atax1c wrote:Fékkstu ekki meira pilsner malt ? http://www.brew.is/oc/Korn/Premium_Pilsner" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég fékk 125kg en það fóru strax nokkrir sekkir og ég er strax dottinn í hallæri með það, á bara rúmlega sekk eftir sem ég ætlaði að halda fyrir sjálfan mig :( Það getur samt verið að ég geti reddað meira pilsner malti í næstu viku.
User avatar
atax1c
Gáfnagerill
Posts: 247
Joined: 17. Apr 2010 18:42

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by atax1c »

Það væri geggjað, maður þarf að fara að gera hveitibjóra á fullu sem fyrst =)
User avatar
atax1c
Gáfnagerill
Posts: 247
Joined: 17. Apr 2010 18:42

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by atax1c »

Áttu von á pilsner á næstunni ? :fagun:
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

atax1c wrote:Áttu von á pilsner á næstunni ? :fagun:
Ég náði að redda mér nokkrum auka sekkjum, sem ég fæ vonandi í vikunni. Þetta fór óvenjulega fljótt núna - fólk greinilega eitthvað meira að pæla í pilsner sem grunnmalti en ég er vanur :)
User avatar
gunnarolis
Undragerill
Posts: 563
Joined: 23. Mar 2010 16:44

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by gunnarolis »

Ef menn eru í miklu stressi með að fá Pilsner malt þá er ég aflögufær um það. Hafið bara samband í EP.
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Ég er búinn að fá nokkra sekki af pilsnermalti í viðbót. Einnig bættist við W-34/70 lagerger og joðófór.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Ég var að fá helling af geri frá fermentis og danstar. Eitthvað lækkaði í verði, t.d. lagerger frá fermentis. Nóg til af us05, wb06, t58 og öllu hinu :)

Einnig nóg af whirfloc töflum, á lægra verði en áður.


Og fullt af töppum, í fullt af litum:
Rauður, grænn, blár, appelsínugulur, silfur, svartur, gull, hvítur.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Einhverjir hafa verið að spyrja mig út í vigt til að mæla humlaviðbætur og annað... Bætti slíkri við á síðuna hjá mér, 2000kr, sem er auðvitað gjöf en ekki gjald :)

0.1gr upplausn
http://www.brew.is/oc/Vigt" onclick="window.open(this.href);return false;

Image
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Nú er ég lens á mest allt grunnkorn - en örvæntið eigi, ég fæ góðan slatta af pale ale, pilsner, vienna, hveiti og fleiru eftir 2 vikur.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Ég verð í fríi þessa viku (4-10 júlí) og mun ekki geta afgreitt neinar pantanir.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

1650kg af korni voru að detta í hús. Á núna nóg til af öllu :) Fékk Pale Ale, Pilsner, Hveiti, Vienna og CaraHell í sendingunni.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Ég var að fá tilboð í stálpotta hjá fastus, með ansi fínum afslætti. Spurning hvort einhverjir myndu vilja kaupa á þessu verði?

31.5 lítrar - 19.000kr
50 lítrar - 28.000kr
98 lítrar - 52.000kr
gugguson
Gáfnagerill
Posts: 215
Joined: 26. Mar 2011 14:55
Location: Reykjavik

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by gugguson »

Hvað með 72 lítra pottinn?
hrafnkell wrote:Ég var að fá tilboð í stálpotta hjá fastus, með ansi fínum afslætti. Spurning hvort einhverjir myndu vilja kaupa á þessu verði?

31.5 lítrar - 19.000kr
50 lítrar - 28.000kr
98 lítrar - 52.000kr
Gerandi Bruggfélag

Næst: Carlsberg Clone, Biere de Garde, Hlemmur
Í gerjun: Dubbel úr BCS, Hlemmur III (Irish red)
Á flösku: Fölvi (Þurrhumlaður Pale Ale)
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

gugguson wrote:Hvað með 72 lítra pottinn?
hrafnkell wrote:Ég var að fá tilboð í stálpotta hjá fastus, með ansi fínum afslætti. Spurning hvort einhverjir myndu vilja kaupa á þessu verði?

31.5 lítrar - 19.000kr
50 lítrar - 28.000kr
98 lítrar - 52.000kr
Ætli hann sé ekki einhversstaðar á milli 98 og 50. Ég er ekki með verðið á honum.
Steinarr
Villigerill
Posts: 23
Joined: 10. Aug 2011 23:24

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by Steinarr »

Ég hugsa að við félagarnir værum líklegast til í einn 50L...

en með plastið er eitthvað verra að vera með t.d. 60L plasttunnu eins og þessar frá Saltkaup heldur en að vera með ryðfrían stálpott, er ekki það helsta sem menn taka eftir með plasttunnurnar að þær litast með tíð og tíma?

hvað pottinn varðar að þá var planið að vera með hellu eða element til þess að geta notað hitastýringu með þessu (semsagt er ekki svo spenntur fyrir gasinu). Til þess að þetta gangi nú vel fyrir sig er þá ekki málið að vera með amk 2x2000W element eða 4000W hellu ?
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by sigurdur »

Ég myndi ekki nota hellu ef þú ætlar að nota plastpott ....
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Stálpottar endast lengur (endalaust) og eru þægilegri í umgengni, t.d. þrifum og svona.
Steinarr
Villigerill
Posts: 23
Joined: 10. Aug 2011 23:24

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by Steinarr »

sigurdur wrote:Ég myndi ekki nota hellu ef þú ætlar að nota plastpott ....

já ég gerði mér nú grein fyrir því að það gengi ekki saman ;)

Pælingin er plasttunna með elementum eða stálpottur með elementum eða stálpottur á hellu
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri

Post by hrafnkell »

Ég ætla að nota element í stálpottinn hjá mér allavega... Það er erfitt og dýrt að finna hellu sem er meira en 2-2500w.
Post Reply