Sælir félagar.
Eins og á síðasta ári kemur félagið til með að halda kútapartý með svipuðu sniði og síðasta ár. Þá mættu menn með kúta og grillmat og grilluðu á miklatúni og gæddu sér á heimalöguðum veigum af kút á túninu. Öllum var frjálst að mæta og voru vinir sérstaklega boðnir velkomnir. Var það mat manna að þetta hefði heppnast vel, og því hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn.
Dagsetning fyrir viðburðinn er á menningarnótt, sem að þessu sinni er 20. Ágúst 2011.
Nánari tímasetning og upplýsingar koma síðar.
Þeir sem hafa áhuga á því að bjóða uppá bjór úr kút mega senda mér einkaskilaboð. Síðast voru um 4 kútar í boði, sem kláruðust ekki allir, en það er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig
Ég mun síðan bæta í þráðinn ef fólk býður fram kúta. Gaman væri að hafa sem mesta fjölbreytni í kútum svo allir geti fengið eitthvað við sitt hæfi.
Að sjálfsögðu er öllum frjálst að mæta líka með bjór á flöskum og bjóða gestum uppá.
Kv Stjórnin