Sælir Fágunarmenn.
Þá er komið að annari pöntun í samstarfi við Vínkjallarann.
Markmið pöntunarinnar er að auðvelda félagsmönnum að verða sér úti um hráefni og áhöld í bruggið, og er samskotinu ætlað að lækka hlutfallslegan sendingarkostnað hvers og eins. Pöntuninni er á engan hátt ætlað að grafa undan innlendum aðilum í sama bransa, og eru menn beðnir um að halda umræðu um það í aðskildum þræði.
Fyrirkomulagið á pöntuninni verður það sama og síðast, með þeirri breytingu einni að nú verður ekki bara staðfestingargjald, heldur verður að greiða áætlaðan heildarkostnað á vörunum þegar pöntun er staðfest. Eftir að vörurnar koma til landsins verður reiknað endanlegt verð og mismunurinn gerður upp. Er þetta gert vegna þess að einhverjar pantanir úr síðustu sendingu voru sóttar mánuðum eftir að þær komu til landsins. Félagið hefur ekki fjárhagslega burði til þess að vera lager fyrir félagsmenn, þannig að svona verður þessu háttað héðan af. Þar sem er komin ákveðin reynsla á fyrirkomulagið ætti skekkja í áætluðum útreikningi að vera lítil, og því ættu eftirstöðvar af pöntuninni að vera litlar.
ATH! Eingöngu aðilar skráðir á vefsíðuna fagun.is geta pantað vörur. Fullgildir félagsmenn fá hagstæðari kjör en aðrir enda er umsýsla í höndum félagsins. Þar sem gjaldkeri félagsins er erlendis verða það fullgildir meðlimir á síðasta aðalfundi sem teljast til þessara aðila.
Lokadagsetning pöntunar er 24. Júní. Fresturinn er stuttur, því er um að gera að draga ekki að velja sér góðgæti í pöntun. Allar pantanir þurfa að berast fyrir miðnætti 24. Júní, pantanir sem berast eftir það verða ekki teknar gildar.
Hægt er að panta með því að senda tölvupóst á netfangið
pontun.fagun@gmail.com.
Fyrir hverja pöntun þarf að tilgreina:
* Fullt nafn
* Kennitala
* Notendanafn á fagun.is
Fyrir hverja vöru þarf að tilgreina:
* Nafni vörunnar af vefsíðunni, t.d.spraymalt powder amber 5 kg
* Vörunúmer t.d. 052.026.2
* Verð á vef, t.d. EUR 30,17
* Fjöldi, t.d. 2
Heildarverð er uþb verði í evrum * gengi dagsins * 1,4 (flutningskostnaður + gjöld + álagning) * [1,07 (vsk fyrir matvæli) eða 1,255 (vsk fyrir aðrar vörur)]
ATH! Hér er eingöngu um nálgunarverð að ræða og getur því hækkað/lækkað eftir atvikum.
Greiða þarf staðfestingargjald sem er um það bil heildarverð pöntunarinnar áður en pöntunin er send til Vínkjallarans. Greiðsluupplýsingar verða sendar sem svar við hverri pöntun og staðfesting á móttöku pöntunar.
Dæmi um pöntun:
Ingemar Stenmark, kt. 111111-1111
SkidaIngi
spraymalt powder amber 5 kg 052.026.2 EUR 30,17 1
dried brewing yeast SAFALE S-04 11.5 gr 050.005.8 EUR 2,60 6
Pöntun verður sjálfkrafa ógild ef gjald er ekki greitt fyrir lokadagsetningu pöntunar.
Viljir þú hætta við pöntun getur þú sent tölvupóst á netfangið
pontun.fagun@gmail.com þess efnis fyrir lokadagsetningu pöntunar, þar sem þú tilgreinir nafn, kennitölu og notendanafn á fagun.is.
Kveðja, Stjórnin.