Ég setti niður eina plöntu af Northern Brewer sem ég fékk í Garðheimum núna um daginn, hún dafnar vel enn sem komið er og er orðin u.þ.b. 1,70 metrar á hæð. Spenntur að sjá hvernig hún verður og hvernig hún mun blómstra. Eru einhverjir aðrir að rækta humla hérna heima og hvernig hefur það gengið?
Tvær myndir af plöntunni, báðar teknar á símann sem er ekki með neitt sérstaka myndavél.
Á flöskum: Barollo 2 árs, Barollo 1 árs Á Kút: Hrísgrjónalager Í gerjun: Lambic Base, Berliner Weisse, Berliner Weisse Kriek, IPA, Pale Ale, CaliCommon Í bígerð: Flanders Red Ale, IPA, HoneyWeizen Haraldar
Mér skilst að það þurfti að hýsa þær inni fyrstu tvo veturna, ég fékk nú ekki neinar frekari skýringar á því en systir mín er að koma sér upp humla plöntum sem uxu fyrir einhverjum áratugum við hús sem hún á .
Hún fann humla plöntur í gróðurhúsi í borgarfyrði og það reyndust vera plöntur frá afleggjurum sem teknir voru við þetta hús, svo hún ætlar að koma þeim aftur heim.
Það væri skemmtilegt að nota þá í eina væna lögun handa henni einn daginn, yrði svo sannarlega "House beer" hússins
Feðgar wrote:Mér skilst að það þurfti að hýsa þær inni fyrstu tvo veturna, ég fékk nú ekki neinar frekari skýringar á því en systir mín er að koma sér upp humla plöntum sem uxu fyrir einhverjum áratugum við hús sem hún á .
Hún fann humla plöntur í gróðurhúsi í borgarfyrði og það reyndust vera plöntur frá afleggjurum sem teknir voru við þetta hús, svo hún ætlar að koma þeim aftur heim.
Það væri skemmtilegt að nota þá í eina væna lögun handa henni einn daginn, yrði svo sannarlega "House beer" hússins
Kv. Sonur
Sæll Sonur
Hér er pistill sem segir hvernig þú getur metið beiskjuna í þessum humlum þegar þar að kemur: http://professorgoodales.net/archives/5906" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég skal alveg bjóða mig fram til að rækta eins og einn afleggjara hjá mér.
Ég var með 7 plöntur í jörðu í vetur og lifðu allar. Svo var ég með einar 10 í pottum í vetur. Þær drápust allar nema ein og þá sem lifði (First Gold) tróð hundurinn í spað
Jæja þá erum við komnir úr fermingarveislunni og er búnir að skoða humlana.
Eitt er víst að við munum einn daginn nota þá í bjór.
Það er að vísu ekki sjón að sjá þá í dag, bara ræfilslegar vafningsjurtir, en ef þeir gefa einhvað af sér þá getum við vonandi þurrkað það og varðveitt.
Nú er bara að lesa sér til um humlauppskeru og meðhöndlun, liknurinn frá Hrafnkeli kemur eflaust að góðum notum þar.
Það ætti ekki að vera neitt mál að fá afleggjara en látum það bíða betri tíma.