Europris brúsar

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
Squinchy
Gáfnagerill
Posts: 205
Joined: 21. May 2009 15:40
Location: Grafarvogur

Europris brúsar

Post by Squinchy »

Sælt veri fólkið, ég nældi mér í svona 25 lítra brúsa í europris um daginn fyrir gambra og varð alveg dolfallinn yfir þessum brúsa, mun auðveldara að koma honum fyrir heldur en tunnunni og auðveldara að ná góðu taki á honum, en ég fór að skoða hann betur og sé hvergi matvæla plast merkið á honum (þetta með glasinu og gaffal) merkingarnar sem ég fann eru PE-HD 02, svo einhver klukka sem bendir á 10 :-?

Ætli það sé safe að nota þetta í bjórinn ?
kv. Jökull
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Europris brúsar

Post by sigurdur »

Þetta er án efa fínt í bjórinn. PE-HD er gott plast, en það má vera að það sé ekki að matvælastaðli, eða að framleiðandinn vildi ekki greiða fyrir að geta sett slíkt merki á tunnuna.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Europris brúsar

Post by hrafnkell »

Áttu mynd af brúsanum?
User avatar
Squinchy
Gáfnagerill
Posts: 205
Joined: 21. May 2009 15:40
Location: Grafarvogur

Re: Europris brúsar

Post by Squinchy »

Okei snilld :), skal taka mynd af honum á morgun
kv. Jökull
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Europris brúsar

Post by kalli »

Hvernig er að þrífa þetta eftir notkun? Situr krausen fast á honum og erfitt að komast að því með bursta eða eitthvað?
Life begins at 60....1.060, that is.
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Europris brúsar

Post by kristfin »

ég nota gjarnan svona brúsa þegar mikið er að gerast. að notkun lokinni þá skola ég þá vel og læt góða skvettu af klór, fylli af vatni og læt standa í nokkra daga. tandurhreint eftir, engir burstar eða neitt
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
Squinchy
Gáfnagerill
Posts: 205
Joined: 21. May 2009 15:40
Location: Grafarvogur

Re: Europris brúsar

Post by Squinchy »

Ég nota sömu aðferð og Kristfin og ekkert vesen með botnfallið
kv. Jökull
User avatar
Squinchy
Gáfnagerill
Posts: 205
Joined: 21. May 2009 15:40
Location: Grafarvogur

Re: Europris brúsar

Post by Squinchy »

Image
Image
Image
Svo er einnig hægt að fá lok með krana á
kv. Jökull
User avatar
aki
Kraftagerill
Posts: 90
Joined: 8. Sep 2009 10:42

Re: Europris brúsar

Post by aki »

Ég lenti nú í smáhavaríi með einn svona brúsa fyrir nokkrum mánuðum. Asnaðist til að setja 25L í hann. Hann sprengdi af sér tappann og hentist fram á gólf úr hillunni en lenti sem betur fer á réttum kili. Maður þarf sem sé að gæta að því að ofgera ekki og ég myndi persónulega skera opið aftara gatið þar sem litli tappinn er og koma þar fyrir slöngu fyrir krausen. Það var ekki mikið grín að þrífa bjórinn af loftinu! Sem betur fer þá skemmdist bjórinn sem eftir var ekki neitt og ég fékk um 20L af fínum APA sem gerði þrifin þess virði :drunk: Tók samt tíma að fá SWMBO til að samþykkja aðra sessjón eftir þetta slys.
Í gerjun: Ekkert
Á flöskum: ESB
Á teikniborðinu: Jólabjór
Post Reply