3 AG komnir í gerjun

Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Post Reply
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

3 AG komnir í gerjun

Post by anton »

Notaði miðvikudaginn og renndi 3 AG í gegnum græjurnar mínar og í gerjun.

Tók annað run af "copy" bjórnum, vegna mikils lofsöngs um hann.

Svo keyrði ég annan APA þar sem ég (vonandi) betrumbætti þann aðeins - meiri humlar og þéttari karmella.

Svo gerði ég einvherskonar tékkneskt-amerískt brúnöl með saaz humlum eingöngu. Smakk eftir suðu lofaði mjög góðu, Er spenntur fyrir þessum.

Gerlarnir farnir að úða í sig maltsykrinum með látum í morgun. Ná vætanlega hámarki á miðnætti á morgun og yfirgnæfa terturnar. Lofar góðu.

Smelli uppskriftunum inn eftir nokkrar vikur af því sem ég er ánægður með.
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: 3 AG komnir í gerjun

Post by kristfin »

vel að verki staðið.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: 3 AG komnir í gerjun

Post by anton »

Nú er búið að sampla þetta rækilega.
Brúnölið var ljósara en ég hefði viljað sjá það og mjög lítil beiskja, aðeins minni en ég hélt ég myndi fá. Hann er enn svolítið óþroskaður, miðað við hina, en samt góður. Virkilega sætur á bragðið (mikið karmellu bragð) - og kemur líka betur fram þar sem humlarnir eru mildir.

Ég ætla að leyfa honum að þroskast yfir unglingsárin. Ég set hina há-leynilegu uppskrift hér á spjallið - þegar hann er orðin meira þroskaður.

APA bjórarnir báðir eru óþægilega góðir, algjörlega til vandræða og verður líklega erfitt að horfa á óopnaðar flöskur í ískápnum...en þannig á það að vera. Ég skutla uppskrift af "Argon" á uppskriftaþráðinn - hann er nammi og á örugglega bara eftir að batna!
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: 3 AG komnir í gerjun

Post by hrafnkell »

Þá er bara að drífa í fleiri lagnir af þessum sem heppnuðust vel. Það er grautfúlt að klára góða bjórinn og eiga ekki meira af honum :)
User avatar
gunnarolis
Undragerill
Posts: 563
Joined: 23. Mar 2010 16:44

Re: 3 AG komnir í gerjun

Post by gunnarolis »

Aldrei brugga sama bjórinn 2svar. Það hægir á manni! :)
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: 3 AG komnir í gerjun

Post by Eyvindur »

Hljómar vel. Athugaðu þó að humlar dofna mjög hratt, þannig að APA er vanalega bestur ungur, og ef þér finnst brúnölið vera í sætari kantinum verður hann bara sætari. Aldur er bara gagnlegur mjög sterkum og/eða maltríkum bjórum, en hins vegar afar leiðinlegur við humlagleði.

Ég varð bara, þar sem ég hef lent í að bíða of lengi með að drekka hluta af IPA skammti, og hann var töluvert minna skemmtilegur þriggja mánaða en þegar hann var ferskur.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: 3 AG komnir í gerjun

Post by anton »

Eyvindur wrote:Hljómar vel. Athugaðu þó að humlar dofna mjög hratt, þannig að APA er vanalega bestur ungur, og ef þér finnst brúnölið vera í sætari kantinum verður hann bara sætari. Aldur er bara gagnlegur mjög sterkum og/eða maltríkum bjórum, en hins vegar afar leiðinlegur við humlagleði.

Ég varð bara, þar sem ég hef lent í að bíða of lengi með að drekka hluta af IPA skammti, og hann var töluvert minna skemmtilegur þriggja mánaða en þegar hann var ferskur.
Jamm. Svo hef ég lesið. Þetta er náttúrulega alveg spánýtt (tappað á fyrir þrem vikum þannig að þeir eru rétt að ná áttum og nýlega kolsírðir og þannig. Svo er S-04 í brúnölinu og það var klárlega leiðindar keimur af því þegar ég samplaði eftir ~10 daga, en það er að víkja núna fyrir humlabragði og betra maltbragði.

Seinasta APA lögn af samskonar gerð var virkilega góð eftir ~2 mánuði á flöskum. Þá var komið gott jafnvægi. Væntanlega samt hefði hann byrjað að gefa eftir í humlabragði eftir það, en ég á aldrei eftir að komast að því... :sing:

En maður er svo nýr í þessari alvöru bjórgerð að maður á eflaust eftir að gera fullt af gloríum, en ég á frekar von á að ein af þeim verði EKKI að gleyma að drekka ölið :)
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: 3 AG komnir í gerjun

Post by Eyvindur »

anton wrote:En maður er svo nýr í þessari alvöru bjórgerð að maður á eflaust eftir að gera fullt af gloríum, en ég á frekar von á að ein af þeim verði EKKI að gleyma að drekka ölið :)
Hehehe, það er gott að heyra. Samt varla gloría - það er ágætt að geyma nokkrar flöskur til að fylgjast með því hvernig ólíkir bjórar eldast. Það gefur manni mikilvægar upplýsingar upp á framtíðina.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply