Fékk 100 flöskur hjá Jóni. Það eru allir velkomnir til þeirra að fá flöskur á meðan að birgðir endast. Ekkert vitlaust að taka það sem maður þarf í augnablikinu svo að allir geti fengið skjálftaflöskur sem hver heimabruggari veit að eru þægilegustu flöskurnar til afnots og töppunar.
Fékk að smakka nýja Hveitibjórinn hjá þeim sem ber vinnuheitið Freyja og er alveg prýðilegur sumarbjór. Fékk líka að smakka prufu af öðrum bjór en ég þori ekki að segja frá hvað það er :)
Heimsóknin er staðfest og núna er bara að finna tíma og fjölda sem koma. Þeim hlakkar mikið til og mér sýnist þeir ætla bara að taka okkur í fóstur til sín!
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Töluðum við ekki um að makar væru velkomnir á stærri viðburði, eins og árshátíð og slíkt, en annars væri þetta makalaust (nema auðvitað ef makinn er skráður félagi)? Þannig skildi ég niðurstöðuna...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Erum við að spá í hádegi eða kvöldmatarleyti eða eitthvað þar á milli?
Gæti verið sniðugt að hafa þetta eftir kl. 16.00 til að gefa þeim, sem eru á ferðalagi þessa helgi, kost á að koma sér í bæinn og í Ölvisholtsfíling. Ég vil taka fram að ég er ekki búinn að plana ferðalag þessa helgi, ég er aðeins að reyna að taka tillit til þeirra sem hafa slíkt í hyggju.
Styð hugmyndina hans Halldórs, þetta er mikil ferðahelgi og líklegt að einhverjir verið ekki klárir fyrr en seinnipartinn - verð sjálfur í ferðalagi, en get verið klár t.d. kl 16
Er þá ekki málið að reyna að hafa brottför úr reykjavík klukkan 16:00?
Allir fullgildir meðlimir velkomnir.
Hressleikinn í fyrirrúmmi!
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Á ekki að fara að búa til áberandi þráð um þetta og byrja á skráningu? Við eigum eftir að staðfesta tíma, panta rútu og skipuleggja daginn (sjá undirskriftina).
Hjalti: Ert þú ekki til í að búa til Sticky þráð undir Almenn umræða, þar sem við getum rætt tímasetningu, rútu og jafnvel hvað við ætlum að borða?... mér sýnist að við ætlum að vera þarna á kvöldmatartíma. Væri kannski sniðugt að taka með osta og baguette eða????
Svo væri kannski hægt að hafa annan skráningarþráð þar sem ekkert annað en skráning má fara í (til að hafa þetta allt saman skýrt).
Úlfar féhirðir: Verður þetta ekki greitt úr vasa hvers og eins? m.ö.o. við notum ekki sjóði FÁGunar til að greiða rútuna... eða hvað?
Það á enn eftir að finna góða leið til þess að skrá það, en árgjaldið verður 4000 krónur og fer það í það að borga fyrir allskonar kostnað sem tengist.
Held að það sé engin fyrirstaða að þú skráir þig í skraning@hjalti.se allavega og bara endilega gerðu það Því fleiri því betra bara
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Kíkti og náði mér í flöskur. Fékk helling (giska á 150 stykki, á eftir að telja almennilega). Góðar móttökur og fékk að smakka Freyju... Alveg ágætis sumarbjór, finnst mér. Svalandi og bragðgóður. Alveg bjór sem ég myndi leita í þegar mig langaði í einhvern léttan og svalandi í mestu blíðunni. Konunni fannst hann líka algjört nammi, þannig að við hjónin höldum áfram að styrkja Ölvisholt þegar þessi kemur í búðir (sem verður fljótlega, skilst mér - þeir eru að bíða eftir miðum á flöskurnar sagði Jón).
Hlakka gríðarlega til á mánudaginn!
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Nei, ég þarf að hugsa það mál aðeins yfir helgina. Ef ég kaupi eitthvað verður það hvort sem er sáralítið, og má alveg bíða þangað til á mánudaginn. Ég er svo vel byrgur, og þeir eru með það lítið malt til sölu, að ég vil frekar eftirláta það öðrum sem bráðvantar það. Ég hef ekki mikinn tíma til bruggs í sumar hvort sem er, og þeir fá meira í haust. Ég kaupi í mesta lagi smá caramel malt hjá þeim... Ég á yfirdrifið nóg af humlum...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
já ok, ég þarf einmitt að byrgja mig upp núna þar sem ég á ekki oft leið þarna framhjá
Eru þeir nokkuð með caramel malt til sölu núna eða eiga þeir von á því í haust?