Einhverjir indverjar sem eru að ná sér í hunang og kreista úr búinnu lítravís af hunangi.
Getið þið ímyndað ykkur Mjöðið sem væri hægt að gera úr svona hunangi! Væri til í að prufa þetta alltsaman
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Ákvað að prófa þennann leik, markmiðið er að búa til brugghús og viðhalda því, búa til ýmsa bjóra og svona.
Þú hefur um 3 lönd að velja, bretland, belgíu & þýskaland, þú getur valið microbrewery og einhver 2 aðrar stærri stærðir af brugghúsum. Svo geturðu tekið á móti gestum og svona crap...
Ölvisholt 2
Í gerjun : Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
Strákar, væruð þið vinsamlegast til í að hafa skráaskipti á efni sem heyrir undir höfundarrétt ykkar á milli og halda því utan þessa spjalls? Þetta er ólögleg iðja og ég held að ég sé tæpast einn um að vilja halda öllu slíku fjarri Fágun. Ég held að það væri jafnvel best að þessir þræðir hyrfu héðan, því það verður okkur tæpast til framdráttar ef utanaðkomandi aðilar detta hér inn og sjá ólögleg skráaskipti fara fram á spjallinu okkar.
Ég er viss um að þið skiljið þessar áhyggjur. Við þurfum að hugsa út í þessa hluti, því við höfum jú öll sama markmiðið: Að auka veg og virðingu áhugamálsins okkar. Þá er best að halda svona löguðu fjarri ásýnd okkar út á við.
kk
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór