Sæl,
Hef framleitt bjór í nokkur ár, aðallega frá Ámunni, reyndi Europrís, en varð næstum að bindindismanni við þær tilraunir.
Nú langar mig að læra að persónugera bjórinn, bragðbæta o.þ.h. Þess vegna er ég hér.
Takk fyrir
Skemmtilegt að þú viljir taka skref til að bragðbæta bjórinn þinn. Það eru fullt af góðum upplýsingum á síðunni, en ef þú finnur ekki þær upplýsingar sem þú leitar að, þá er bara að spyrja.
Hvert stefnir þú í bruggun og hvað hefur þú bruggað lengi?