Góðann daginn ágæta fólk.
Maður datt einhvernveginn inn í það að ákveða að fara að brugga. Ég rakst á þessa frábæru spjallsíðu í gegnum google
Er maður nú alger byrjandi í víngerð.
Ég fór í ámuna og keypti mér allt tilheyrandi og þetta fína rauðvín, Merlot.
ég er að pæla það stendur í leiðbeiningunum að það eigi alltaf að láta gerjun klárast alveg, og svo meigi alltaf sæta vínið eftir á.
Vínið hjá mér fór alveg úr 8 í -8. á einum sólahring, flokkast það ekki sem mjög þurrt vín?
Ef svo er, hvaða sykur á maður að nota til að sæta? bara venjulegan hvítan sykur eða einhver sérstakan sykur?
Og svo hvar getur maður fengið Rauðvínsflöskur á skikkalegu verði?