Sælir.
Ég er að reyna henda saman hugmynd af klóni af dökkum Kalda.
Ég henti þessu upp í Beersmith og þetta er það sem ég er kominn með nú þegar.
Hvað finnst ykkur? Þetta er fyrsta uppskriftin sem ég hendi saman svo þetta getur verið algjör þvæla sem ég henti saman. Ég fékk þó upplýsingarnar um kornið af bjorspjall.is
"Malt: Pilsen, Caramel, Munich, Colour
Humlar: 3 tegundir af tékkneskum humlum þ.á.m. hinir marg rómuðu Saaz humlar."
Veit ekki hvað þetta colour er, en ég henti bara 100 gr af ristuðum rúgi í staðinn.
Eins er ég ekki sáttur við stillingarnar á græjunum þarna. Ég get ekki valið nákvæmlega það sem ég er með, en ég er BIAB í 30 lítra pott og fylli 27 lítra af vatni eins og basic leiðbeiningarnar á brew.is gerir en forritið virðist ekki leyfa mér að velja það svo ég er ekki viss hvort þetta komi allt rétt út.
Ég væri til í að fá second opinion hjá ykkur snillingunum svo ég sé nokkuð viss að ég sé að fá eitthvað drykkjanlegt út úr þessu.
-Kári