Þennann kom ég með frá Danmerkurferð í sumar. (ath... myndin er ekki frá mér, ég hreinlega gleymdi mér í drykkjunni
)
Svaneke bryghus er lítið brugghús í bænum Svaneke sem staðsettur er á eyjunni Bornholm (en ég var einmitt þar í fríi), en þrátt fyrir smægð brugghússins er mikið úrval af öli fáanlegt frá þeim, bæði á dælu sem og í flöskum.
En þetta er sumsé Choco Stout 5,7%
Boddíið er nær svart á lit og hausinn ljóssúkkulaðibrúnn.
Þegar maður þefar kemur á móti manni gífuleg súkkulaðilykt (bæði dökkt og ljóst) sem kítlar mann í nefið á meðan maður bragðar á. Við drykkju þá finnur maður greinilega fyrir vanillu og kaffi en hann er þykkur og kremaður á tungu.
En hann kom mér skemmtilega á óvart og ég dauðsé eftir því að hafa bara tekið eina flösku með mér heim af þessum.
Þetta er ekta desertbjór.
Mbk. Gísli
Fyrirhugað: Black IPA, 15%+ Stout og fleira
Í gerjun: IPA, Súr Saison
Í secondary: Enskur Barley Wine
Á dælu : Hulk vs. Simcoe pale ale
Á flöskum: Fabio - Habanero pale ale, Bloody Frenchmen with their chocolat mousse - Súkkulaðistout
#17