Velkominn, gerillinn góður! Ég er nýr í þessum efnum líka, og sauð minn fyrsta skammt á föstudagskvöldið. Hér eru reyndari gerlar sem eflaust munu ausa úr viskubrunnum sínum fljótlega. Annars hefur margt þegar komið fram á spjallborðinu, svo leitarvélin gæti reynst þér vel.
Ég keypti byrjunarsettið mitt í Ámunni, og hef fátt út á það að setja. Hefði þó gjarnan viljað sjá hitamæli sem þyldi meira en 40°C, upp á að geta fylgst með hitastiginu á meðan á suðunni stendur (virðast afar skiptar skoðanir um nauðsyn þess). Jú, og eftir að finna hve gaman þetta er, hefði ég átt að kaupa mér auka vatnslás til að sjóða aðra blöndu strax. Hugsa að næsta viðbót verði "auto syphon", áður en ég byrja að fleyta yfir á annan kút eða flöskur - og náttúrlega öltappalokari og tappar.
Eldhúsið mitt er furðu lítið miðað við önnur rými, en svo fremi sem potturinn passar sæmilega á eldavélina, og þú hefur rými fyrir ofan hann til að hella og hræra, á þetta ekki að vera mikið mál. Potturinn minn sleppur naumlega í vaskinn fyrir klakabaðið, svo ég hugsa að ég setji hann í baðkarið næst til að kæla.
Pottastærðin ræðst náttúrlega aðeins af því hve mikið þú vilt geta soðið í einu. Ég hugsa að 15 lítra pottur myndi duga fyrir 10 lítra skammta. Ég keypti mér 22 lítra pott í Fastus, og hann mun líklega endast mér vel og lengi, þar sem ég sé ekki fram á að færa út kvíarnar og sjóða meira en e. t. v. 15 lítra um sinn.
Maltsýrópið þarf ekki að kosta svo mikið sem slíkt (ég keypti 1,5 kg. dós á $11,95 US, þá um 1.314 kr), en sendingarkostnaðurinn fyrir svo þunga hluti er helv... hár - rétt um $21 US (2.310 kr.) frá New York. Það er blóðugt að borga nærri tvöfalt meira fyrir sendingarkostnað en sjálfa vöruna. Aftur á móti fannst mér verð og sendingarkostnaður á geri og humlum afar sanngjarnt, en nú bjóða menn hjá Ölvisholti upp á ýmsar tegundir; e. t. v. sparar það einhverjar krónur eða hundraðkarla, ég hef ekki reiknað það út.
All-grain er ekki mikið flóknara, eins og ég skil það. Þar ertu í rauninni bara að búa til þitt eigið "extrakt" úr korninu, og heldur svo áfram eins og venjulega. Eina vandamálið sem ég sé, er að verða sér úti um myllu til að valsa kornið (ef peningar eru engin fyrirstaða, er það náttúrlega ekkert vandamál).