Daginn..
Gunnar heiti ég og er áhugamaður um bjór og bjórdrykkju. Hef ekki stigið bruggunarskrefið ennþá en áhuginn á því hefur verið að aukast mikið undanfarið. Það lá því beint við að skrá sig hér inn, byrja að lesa sig til og henda svo í fyrstu tilraun..
Ég er hluti af hópi sem hefur mikinn áhuga á mismunandi tegundum af bjór og þá sérstaklega þessari íslensku brugghúsabólu sem hefur verið að stækka undanfarin ár. Við höldum úti FB síðu um þetta áhugamál þar sem fleiri hafa bæst í hópinn.. Sjá hér.
Við höldum árlega jólabjórssmökkun þar sem við gefum einkunn og metum hver sé besti íslenski bjórinn ásamt því að fylgjast vel með því sem er að gerast á íslenska bjórmarkaðnum.
Sjálfur er ég haldinn söfnunaráráttu og hef verið að sanka að mér flöskum af þessum íslensku bjórum og safnið telur einhverjar 100 flöskur núna og sífellt fleiri að bætast við. Sumar hverjar ófáanlegar í dag sem rennir frekari stoðum undir söfnunaráráttuna.. Svo kíkti ég á bjórsafnið í Carlsberg verksmiðjunni í Kaupmannahöfn nú í haust og það var gott að sjá að maður er ekki sá geðveikasti þarna úti..
Takk fyrir..