Það hefði verið gaman að svara þessu á föstudagskvöldið, þá fórum við frúin með flestar þær tegundir sem eru til hérna með okkur í sushi veislu hjá vinafólki og það var algjört HITT
Ég er að drekka Cascade rúg-ljósölið mitt, sem er orðið glettilega vel kolsýrt eftir litla 5 daga á flöskum. Það endaði ögn sætar en vonir stóðu til, en rúgurinn er svo magnaður að hann þurrkar eftirbragðið skemmtilega upp og bjórinn virkar stórvel þótt hann sé ekki eins og hann á að vera. Svo er konan líka hrifnari af honum svona en þegar humlarnir eru meira ríkjandi - aðeins betra jafnvægi fyrir minni humlahausa, sem er vel. Nokkuð gott.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
er að gæða mér á la trappe quadrupel oak aged ( http://www.latrappe.nl/content.asp?m=M7&s=P109&l=EN" onclick="window.open(this.href);return false; ) í tilefni afmælis. mikið rosalega er hann góður.
Því miður ekkert heimabrugg í glasi þessa dagana, of mikið að gera.
Jólasmakk .. Einstök stendur upp úr af þeim sem ég náði í (missti af Stekkjastaur og Leppalúða svo það vantar stórar sleggjur í samanburðinn), Viking Bock nr.2. Ölvisholt veldur vonbrigðum. Of nískir á reykinn.
Rækilegt gæðatest á eigin framleiðslu framundan annað kvöld. Fimmta Stjarnan og Apaspil verða stúderuð í þaula með dyggri aðstoð "færibandsstarfsmanna" (strákanna sem koma og hjálpa mér með átöppunina) og "gæðastjóra" (félagans sem hefur smekk til að segja "en..." á eftir "djöfull er hann góður") Klassiker ölgerðar.
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
Er að testa Ölvis jóla.
Mér finnst hann góður. Bara í góðu jafnvægji fyrir minn smekk. Hann er ekki útúr reyktur - en gefur smá fíling - Finnst ég vera nýbúinn að borða einhvern jólamat... Purusteik eða bara jólahlaðborð.... Svo það hlítur að vera hátíð yfir því.
Einstök Dobblebock, fínasti bjór, keypti alla jólaflóruna áðan og er rétt að byrja verður efluast ágætt kvöld.
Á flöskum: Barollo 2 árs, Barollo 1 árs Á Kút: Hrísgrjónalager Í gerjun: Lambic Base, Berliner Weisse, Berliner Weisse Kriek, IPA, Pale Ale, CaliCommon Í bígerð: Flanders Red Ale, IPA, HoneyWeizen Haraldar
halldor wrote:Fullers Chiswick Bitter
Ekki beint minn stíll, en fínn sem bitter.
Væri alveg til í að prófa hann ferskari.
Ég smakkaði hann á Mawson Arms, og hann olli því miður vonbrigðum m.v. kolsýrðu útgáfuna.
Hann er að vísu á cask í Mawson Arms sem má skyggja á humlabragðið.
Var að renna einum Anchor Christmas Ale niður http://www.anchorbrewing.com/beer/christmas_ale" onclick="window.open(this.href);return false;. Einstaklega ljúfur eftir langan vinnudag. Fæ mér svo annan þegar krakkarnir róast annað kvöld. Þessi kemur með jólin til mín.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
var með einn rosalegan í glasi í gær. Heresy frá Weyerbacher (oak aged imp. stout) alveg gríðarlega magnaður. En í kvöld verður sett í glas bjór sem ég er búinn að eiga lengi og búinn að vera bíða eftir réttu stundinn - Mikkeller Nelson Sauvignon http://www.ratebeer.com/beer/mikkeller- ... on/115037/