Langaði að láta ykkur vita kæru vinir að Úlfur frá Borg er komin í sölu. Hann er mjög góður American-IPA sem Stulli (einn af stofnendum Fágunar) skapaði. Til að nálgast hann þarf að leggja leið sína í Heiðrúnu, Skútuvog eða Kringluna. Áfram amarillo! http://www.olgerdin.is/frettir/317/Ulfur-fra-Borg...
Gamalt íslenskt ráð, þegar gangur komst ekki í ölið, var að fá gestkomandi til þess að hræra með stafnum sínum í gilkerinu. Verst hvað það koma fáir í heimsókn með staf þessa dagana.
Gerð í bjór í gær fyrir marsfundinn. Tókst að klúðra þessu! OG var 1.060, þ.e. 0.004 hærra en APA ætti að vera. Veit ekki hvað gekk svona vel en til að bæta gáu ofaná svart þá safnaði ég svo miklum virti að ég gat ekki þynnt hann.
Þetta hljómar mjög vel. Held að humlunum sé slétt sama hvort það sé lager eða ale. Sjálfur myndi ég nota hlutlaust ger og bæta við Mittelfruh líka þegar 15 eða 5 mín eru eftir til að auka bragðið.
Skildi ekki alveg frásögnina en hvað um það. Gravity vil ég kalla þyngd á íslensku, t.d. upphafs- og lokaþyngd. Við Eyvindur vorum sammála að orðið skola sé gott fyrir "sparge" Varðandi loka þyngdina þá er best að bíða þar til gerjun er alveg lokið (froðan farin af bjórnum), mæla þyngdina ...
Ef maður á ekki neitt fáránlega flott blautger þá koma bæði t58 og s33 til greina. Mér finst t58 svolítið pepper-í en ég kann vel að meta það. Einnig kann ég að meta s33 en ég myndi ekki setja það í of veika bjóra. Í einni setningu - gengur bæði í tripple en hann verður ekki eins og belgísku tripple...
Já þetta var nú meiri gleði samkoman. Kalli sýndi glæsilegan tækjakost, Hrafnkell seldi mér vog og svo var heill haugur af skemmtilegum bjór smmmakkaður.
Um leið og ég óska öllum meðlimum fágunar og gestum á spjalli gleðilegs nýs árs vil ég tilkynna um fyrsta fund ársins. Hann verður haldin á Vínbarnum 10. janúar 2011. Fundurinn er haldin viku seinna en hefðin segir til um því fyrstu mánudagur janúar féll ansi nálægt hátíðarhöldunum. Hvet ég alla sem...
Takk fyrir ábendinguna. Þetta er frábært. Ég hafði heyrt af þessari bók en aldrei komist í hana. Ef ég túlka uppskriftina rétt. Þá væri sett ein skeppa af malti, sem ég ætla að kalla 5 kg, og hrærð saman með köldu vatni þannig allt kornið sé blautt. Þetta ættu að vera ca 10 ltr af vatni. Þetta er sv...
Fylgdi leiðbeiningunum hans Sigurðar um hvernig mætti gera bjór tæran með gelatíni. Var með jólabjór sem ekki sást í gegnum, þótti það leiðinlegt því slatti af munich malti átti að gefa bjórnum fallegan lit. Hann leit hinsvegar út eins og dökkur grautur. Eftir meðferðina hans Sigurðar var bjórin kri...