Ég hefði alltaf kosið 28.-30 apríl, 1. maí er svo líka frídagur þ.a. það er löng helgi. Svona ef menn vilja gera langa dagskrá úr þessu. 5.-7. maí er líka frábær. en 21.23. apríl er vonlaus, þá er ég ekki á landinu, og eins og allir vita verður ferðin ömuleg ef ég er ekki með
Ég bruggaði þennan bjór í ágúst og þetta hefur verið aðal drykkjubjórinn hjá mér síðan þá. Tiltölulega hefðbundin pale ale sem varð með meiri karamellukeim en ætlunin var. Því finnst mér hann minna á hefðbundna massaframeidda jóla-lagera hvað karamellukeiminn varðar. Uppskrift: 10 kg Pale ale 2 kg V...
Það er fundur á þriðjudaginn næsta á Skúla og þar verður tekið við fyrstu skráningum í jóladagatal Fágunar. Við munum halda utan um skipulag á því og fjalla sérstaklega um það á facebook síðunni okkar. Endilega mætiði ef þið viljið vera með í því en eftir fundin opnar fyrir skráningar á netinu. Ég ...
Þessi bjór kom til af því að hann er bruggaður rétt eftir hrekkjavöku. Ég asnaðist til að kaupa grasker til að leyfa börnunum að skera út. Síðan bakaði ég graskerið og ætlaði mér að baka úr því pæ. Baksturinn dróst og ég var á sama tíma að vesenast með að velja uppskrift fyrir jóladagatalið þ.a. ég ...
Mér finnst pínu skrítið að það gangi upp að gera púrtvín úr svona kitti. Púrtvín er styrkt vín, þ.e.a.s. þegar það er hálfgerjað er spíra (kallað brandý en er víst ekki eikað og minnir lítið á brandy eða koníak) bætt útí til að stöðva gerjunina. Sætan er því ógerjaður en gerjanlegur sykur og gerið f...
Fyrir dvergakastið fyrir 2 árum gerði ég einfaldan bjór sem ég setti lúkufylli af aðalbláberjum útí í staðin fyrir ger. Þetta er þokkalega ógeðslegasti bjór sem ég hef smakkað en líka með skemmtilegri tilraunum sem ég hef gert.
ég myndi hikstalaust nota annaðhvort 17 lítra box eða 20 l fötu frá saltkaup. Þeir eru svona ódýrir aðallega af því að verðið miðast við umbúðasölu og kaupendur sem kaupa þúsundir eða tugþúsundir eintaka á ári. En vissulega er þetta hugsað sem einnota umbúðir og því eitthvað þynnra í því, en þetta b...
Skoðaðu endilega heimasíðuna hjá Saltkaup. ég asnaðist til að kaupa mér eina 20 l fötu þar sem ég nota aldrei en þeir gætu líka átt 15 l fötur. Þetta eru matvælafötur þ.a. þú verður sjálfur að bora gat fyrir vatnslásnum, en þær eru líka ódýrar þ.a. það er vert að skoða þessa lausn. Hrafnkell getur s...
Mér líst vel á þessar skilatillögur, skírar og skilmerkilega settar fram hjá formanninnum. Það er eitt sem ég till leggja til til viðbótar. Þeir sem komast þann 25. mæti t.d. kl 18 og þá verði fari skipulega í að raða bjórunum upp og raða saman í dagatöl. Það myndi minnka geymsluþörfina mikið ef 5-1...
Sælir ég er búinn að hugsa um þetta annað veifið síðan ég sá fyrst fjallað um þetta fyrir 2-3 árum. Frábært framtak og ég vill vera með. Veit að vísu ekkki með hvaða bjór.... Hugsanlega brettaða bjórinn minn en ég er ekki viss... í fyrra agreiddi ég jólabjórana á þennan hátt, þ.e. bjó mér til dagata...
Ég hef lent í að fá sama virt á bilinu 998-1001 með 3 mismunandi gerum, þetta er væntanlega meira vegna meskingar en gers. Í visky gerð fer bjórinn alltaf niður fyrir 1000 enda meskingin höfð kaldari til að hámarka magn af gerjanlegum sykrum.
Eru margir að hugsa um að fara á Rauða Ljónið fyrir keppni? Ég og frúin ætlum og hefðum gaman af félagsskap... Ef þetta er einhver hópur þarf líklega að panta borð..... í gær. Væri ekki fínt að stefna á Rauða Ljónið kl 18:30 og stefna á að rölta yfir í sjálfstæðissalinn rétt fyrir 8? rúmur klukkutím...
Hér á landi er í raun komin hefð á að þýða orðið "craft" sem forskeitið "handverks-" og passar það vel við orðabókarskilgreiningu: craft krɑːft/Submit noun 1. an activity involving skill in making things by hand . "the craft of cobbling" synonyms: activity, pursuit, occ...
Ég notaði þetta líklega fyrstu 2 árin. Stærsti munurinn að mér fannst er að maður er ekki búinn með bruggdag fyrr en daginn eftir þegar þetta er orðið nógu kalt til að setja gerið útí. Mæli samt með því að nota ekki allt vatnið í meskingu og suðu, heldur eiga eitthvað (10-20%) eftir til að annaðhvor...
Til að skoða hvort hitamælir sýnir rétt er hægt að setja hann í vatn með miklu af klökum eða sjóðandi vatn. þá á hann að sýna 0°C eða 100°C. Öll frávik frá því eru skekkja.
Svona flöskugos hefur verið viðvarandi vandamál hjá mér. Skýringin hefur þó ekki verið sýking. Ég hef bjargað þessu með því að hafa bjórinn vel kaldann og hella honum í glas strax og flaskan er opnuð. Margir bjórar hafa verið þ.a. þetta er ekki vandamál ef bjórinn kemur beint úr kæli en stórt vandam...
Ég er búinn að vera með bjór á fötu núna í ~ 2 mánuði. Þegar ég kom heim úr sumarfríinu tók ég eftir að vatnslásinn á annari fötunni var orðinn tómur. Þá setti ég strax vatn í hann og ákvað að hafa áhyggjur af þessu seinna... Síðan hef ég einusinn eða tvisvar tekið eftir stakri bubblu úr vatnslásnum...
ég er kominn með ágætis kerfi á þetta. Ég reyni að skola flöskurnar strax eftir notkun og horfa vel í þær eins og aðrir, en oft dregst það í nokkra daga. Áður en flöskurnar fara niður í geymslu (tómar og hreinar) skrúbba ég þær allar að innan með hrísgrjónum (betra en flöskubursti). þ.e. ég set smá ...
Já þetta er í Lyngási 13, bakhúsi. Alveg ómerkt en sama hús og Samey sem er kyrfilega merkt. Inngangurinn er staðsettur þar sem örin er á meðfylgjandi mynd.