Flöskur frá Borg: Ég baka flöskurnar á 180-200 gráðum í 20 min. Við það dettur miðinn af. Stundum eru smá límleifar eftir sem fara af með smá stálull undir rennandi vatni.
Ætla að prófa að bjalla í þá og sjá hvað þeir segja.
Önnur spurning, er einhverstaðar hægt að nálgast svona klassíska plastkassa undir bjórflöskur hérna heima? Svona kassa eins og maður fær nánast allan bjórinn sinn í í hvaða matvöruverslun sem er í danmörku.
Hvaðan eru menn að nálgast flöskur undir afurðirnar sínar? Ég var tiltölulega nýbúinn að fara með stóran skammt í endurvinnsluna þegar ég ákvað að hefja bjórgerð þannig að ég á frekar lítinn lager til í geymslunni heima. Þessar flöskur sem eru til sölu í ámunni fannst mér líka óhóflega dýrar þar sem...
Daginn. Ég ákvað að taka upp nýtt hobby yfir jólin og taka barnaskref í átt að því að fara að brugga alvöru bjór. Stefnan er að byrja á svona imba-proof sýrópskitti um helgina og læra aðeins inn á ferlið, færa sig svo upp á skaftið þegar fram líða stundir og fara að malla korn og humla sjálfur í pot...