Ég var í heimsókn hjá vini mínum sem býr í Boston í haust. Auk þess að smakka slatta af NEIPA - bjórum ákvað ég prófa að panta humla beint frá býli: http://hopsdirect.com. Uppskeran þeirra var nýkomin (2017) og því voru bara til lauf / heilir humlar, ekki pellets. Þetta er í fyrsta skipti sem ég not...
Það er smá forsaga að þessum bjór. Hugmyndin kviknaði í Boston þar sem ég var í heimsókn rétt fyrir páska. Ég fór í bruggbúð fyrir Sigga ÆPÍEI að kaupa Sorachi Ace humla. Í leiðinni keypti ég þrjá pakka af þeim fyrir mig og einn af Pacific Jade sem ég sá í hillunni og var með svipaða lýsingu og Sora...
Þessi finnst mér frábær, mjög áhugaverður! Þú segir eikarspírall í 6 vikur. Hvað gerjaðirðu hann lengi, þ.e.a.s. hvenær bruggaðir þú hann og settir svo á flöskur?
Ég hljóp í skarðið þegar einn datt út og fékk úthlutað 22. desember. Bjórinn, IPA, bruggaði ég í byrjun október, og var settur á flöskur rúmum 2 vikum síðar. Hann er lauslega inspíreraður af Ranger IPA frá New Belgium Brewery í Colorado. Í þetta skiptið var ég að prófa nokkra nýja hluti, ég notaðist...
Ég náði miðum af Brewdog - flöskum með mjög góðum árangri. Ég hélt að Brewdog flöskur væru erfiðar, hafði t.d. prófað að leggja í bleyti. Aðferðin er að þú hellir sjóðandi vatni, ég notaði hraðsuðuketil og trekt, ofan í flöskuna. Ég beið aðeins í örfáar mínútúr og þá rennur límmiðinn af eins og ekke...
Hvernig er reynsla þín af þessari T-uppsetningu með tveimur börkum, núna að nokkrum mánuðum liðnum? Var nefnilega að kaupa alveg eins kælibox, og ef þetta hefur reynst vel mun ég reyna að apa þetta eftir. Er mikið mál að ná gúmmíinu úr barkanum?