Takk fyrir! Var búinn að halda aftur af mér um skeið, í von um að gera þúsundasta innleggið epískt... En svo ákvað ég bara að vera leiðinlegur og uppfæra spjallborðið.
Var að uppfæra spjallborðið í nýjustu útgáfu phpBB. Við fyrstu sýn virðist mér allt eins og það á að vera, en ef þið verðið vör við einhver vandamál, endilega látið vita í þessum þræði.
Sæl verið þið! Í þau fáu skipti sem stjórnin sendir pósta á meðlimi spjallborðsins berast oftast nær einhverjar fyrirspurnir um hvernig hægt sé að afþakka slíkan fjölpóst. Þar sem um eiginlegan póstlista er ekki að ræða, heldur virkni spjallborðsins, er lausnin eftirfarandi. Efst í hægra horni vefsí...
Ég miðaði alltaf við 3,6 með hveitibjórana mína. Þeir fóru flestir á flöskur undan Erdinger og Fuller's bjórum. Engar sprengjur né áföll. Þegar ég gerði cider setti ég allt á tveggja lítra plastflöskur undan gosi eins og appelsíni, 7 Up, kók og því um líku. Samkvæmt Beersmith hef ég miðað við 2,5 þa...
Pumpan (auto siphon) er þeim galla búin að pakkninginn byrjar gjarnan að springa vegna þurrks og endingin því ekki ýkja góð (1 ár eða þar um bil hjá mér, að mig minnir - var þó einstaklega virkur bruggari á þeim tíma). Aftur á móti lenti ég aldrei í vandræðum með venjulegan hævert sem ég ýmist saug ...
Síðbúið svar á ferð, svo skiptir vart miklu héðan í frá. Ég hef reynt ýmsar bjórtegundir með hangikjöti á síðustu árum, allt frá léttum enskum bitterum til þyngri, sætra belgískra klausturbjóra. Sá sem ég var hrifnastur af með hangikjötinu var reyktur bjór, Aecht Schlenkerla Rauchbier Märzen. Hann f...
Ástæða þess að ég hætti við email activation á sínum tíma var einmitt sú að bottarnir renna í gegnum nýskráninguna eins og hnífur í gegnum bráðið smjör. Ekkert tiltökumál að logga sig inn á admin vefinn tvisvar, þrisvar á dag og yfirfara nýskráningar.
Til að mæla gravity eftir meskingu, er óhætt að nota sykuflotvogina í svona heitum vökva eða þarf refractometer? Ég efast um að það hafi góð áhrif á glerið til lengdar. Venjulega tekur maður frá sýni í mæliglas og kælir niður í 16°C eða það hitastig sem flotvogin er kvörðuð fyrir (leiðréttið mig ef...
Ég verð að taka undir með Hrafnkeli. Svo óttast ég þessa fyrrum Microsoft menn sem standa á bak við þetta djásn. Ekki myndi ég vilja upplifa BSOD í miðju bruggferli!
Það er erfitt fyrir "venjulegt" fólk að nálgast hann, já. Nýbakaðar mæður geta stundum fengið eitthvert smáræði afgreitt úr apótekum til íblöndunar fyrir hvítvoðungana. En þar sem þetta er einnig mikið notað til blöndunar annarra efna og ólöglegra, þá getur maður litið ansi grunsamlega út....
Já, ég fékk þau tíðindi að hann fengist í Heiðrúnu, Skútuvogi og Kringlunni, og einnig væri mögulega eitthvað eftir á Dalveginum. Þarf þó að bíða til mánaðamóta, vona að einhver eintök verði eftir handa mér þá.
Ég lenti aldrei í vandræðum með mína hveitibjóra karbaða í 3,6. Notaði þó eingöngu 0.5l flöskur frá Weihenstephaner, Paulaner, Erdinger, Fullers og Ölvisholti. Engar flöskusprengjur, bjórgos né önnur vandræði, nema þá að hann kláraðist alltaf of fljótt.
Það bullsauð líka á mér. Ég var einmitt í miðjum klíðum við flutning á vef í nótt þegar allt fór til fjandans. Og ég á ekki einu sinni bjór til að halla mér aftur með og slaka á.
Sælir félagar. Rafmagnsbilun á vegum OR í vesturbænum um kl. 4 í morgun olli því að Tæknigarður missti sitt rafmagn um skeið líka. Varaaflgjafar tæmdust, og viðgerð stóð yfir þar til fyrir um 30 mínútum. Það var því fátt hægt að gera í stöðunni annað en að bíða. Vildi aðeins deila þessum tíðindum me...
Tek undir með Hrafnkeli. Ég gerði einn í stærri kantinum 19. desember 2009. Á enn þrjár flöskur eftir. Opnaði eina fyrir um 6 mánuðum, og skömmin var bara í góðu lagi (þeir hafa alltaf verið geymdir við stofuhita). Það besta er að bölvað kryddbragðið sem gerði hann nánast ódrekkandi þá, hefur dofnað...
Það virkar mjög vel þegar maður er að færa á milli vélbúnaðar. Ég er "bara" að skipta um IP net (fara af /24 neti sem ég deili með öðrum, yfir á prívat /29 net). Sem er að sjálfsögðu hrútleiðinlegt, því nafnaþjónninn skiptir um IP tölu, og allar IP tölur á þeim tugum léna sem á honum hvíla...
Sælir, kæru gerlar! Næstkomandi föstudagskvöld verður nokkur röskun á vef- og póstþjónustum Fágunnar. Um er að ræða vélbúnaðaruppfærslur og flutning yfir á nýtt IP net. Undirbúningur hefur gengið vel, og sjálfar breytingarnar ættu því að ganga hnökralaust fyrir sig. IP tölur nafna-, net- og póstþjón...
Hef bragðað sake (sem minnti mig hreinlega á góðan gambra!), en ekki grunaði mig að ferlið væri þetta umfangsmikið. Ég er ekkert nema augu og eyru núna. Mun þó ekki ríða á vaðið með tilraunir.
Þessi er ljómandi góður. Myndi ekki hika við að skella honum í IPA flokkinn. Mest bar á humlunum í bragði og ilmi. Hef e. t. v. fengið óþétta flösku, þar sem hann var aðeins rétt nægilega kolsýrður, en án haus og hala. Ferskur er hann vissulega og fyllingin hvorki of né van. Þurrhumlunin hefur skila...