Page 1 of 1

örninn er sestur

Posted: 11. Jun 2010 20:23
by kristfin
ég var að hella í fyrstu glösin af hveitibjórnum mínu. fór á kút fyrir viku og maður er með tárin í augunum. sennilega besti bjór sem ég hefi búið til. hugsa að það muni öllu þetta ger

Re: örninn er sestur

Posted: 11. Jun 2010 21:24
by arnarb
Hvaða uppskrift ertu með?

Re: örninn er sestur

Posted: 11. Jun 2010 21:57
by Bjarki
Er að spá í að leggja í hveitiöl og nota innihaldið úr þessu fína glasi sem þú lést mig fá á fundinum kristfin, takk fyrir það. Er það sama gerið og í þessum fína sem fær hraustustu karlmenn til að tárast af gleði ? Hvað heldurðu að það eigi mikið eftir þ.e. í tíma ? Hvernig notar maður svona smá skammta ?

Re: örninn er sestur

Posted: 12. Jun 2010 00:55
by kristfin
ég mundi nota gerið sem fyrst.

uppskrifitin er bara þessi klassíska sem 50/50 hveiti og pilsner.
http://www.fagun.is//viewtopic.php?f=2& ... 9070#p9070" onclick="window.open(this.href);return false;

síðan er það 30 reglan. pitch temp + ferm temp = 30, þeas ef maður pitchar við 13 gerja við 17.

þetta er orðið uppáhaldsgerið mitt núna

Re: örninn er sestur

Posted: 12. Jun 2010 06:46
by Braumeister
Síðast þegar ég notaði þetta ger fékk ég þessa fínu estera, en þá gerjaði ég við 21 gráður.

Gerjaðirðru hann við 17 og fjekkstu samt fína estera?
Notaðirðu single infusion?

Ég bruggaði 45L af þessu um daginn (sama ger) og gerjaði við 19 gráður í tveim 30L fötum. Ég er reyndar enn að drekka úr fötunni sem var ekki með vatnslás (lét lokið liggja bara laust á) og það er ekki vitundarvottur af esterum í þessu.

Þetta með vatnslásinn er reyndar ekki það eina sem mætti betur fara með þessa fötu. Ég fleytti þessu voða fínt ofan í hina fötuna, en þegar það var komið að þessari var gashellan ekki nógu há til að hægt væri að fleyta ofan í hina. Þar sem að við vorum orðnir kærulausir helltum við bara allri restinni ofan í gerjunarfötuna. Þrem vikum síðar var svo mikið botnfall í fötunni að hellingur af því sogaðist með í gegnum kranann þegar ég henti þessu í átöppunarfötuna.

Þær flöskur sem eru með meira en ca hálfan cm af botnfalli gjósa eins og ég veit ekki hvað....

Re: örninn er sestur

Posted: 12. Jun 2010 08:55
by sigurdur
Þú átt að fá flotta estera þrátt fyrir lágt gerjunarhitastig.
Ástæðan á bak við það er að hvert ger hefur sinn character í réttu gerjunarhitastigi (ekki viljandi of háu). T.d. US-05 er mjög hlutlaust ger við 17°c en T-58 kemur með pipartóna.
Þar af leiðandi er hægt að áætla að hvert hveitiger gefi sinn character við rétt hitastig.

Re: örninn er sestur

Posted: 12. Jun 2010 09:41
by kristfin
ég hef verið að gerja við svona 19 gráður. frekar passívir esterar.

langar að gerja við 17 næst.

Re: örninn er sestur

Posted: 12. Jun 2010 13:28
by kristfin
ég á eina krukku eftir. það getur dugað í svona 4 skammta ef einvher hefur áhuga. ég verð erlendis næstu 2 vikur þannig að ég kemst ekki í að brugga neitt.

ég á þetta ger í bankanum þannig að ég rækta bara upp starter þegar ég tek næstu umferð.

Re: örninn er sestur

Posted: 12. Jun 2010 22:31
by Bjarki
Þarf að gera startara eða bara hita og láta þetta gossa í fötuna ? Hef aldrei notað annað en þurrger :)

Re: örninn er sestur

Posted: 12. Jun 2010 22:40
by sigurdur
Ég myndi búa til starter.

Re: örninn er sestur

Posted: 13. Jun 2010 11:01
by halldor
kristfin wrote:ég á eina krukku eftir. það getur dugað í svona 4 skammta ef einvher hefur áhuga. ég verð erlendis næstu 2 vikur þannig að ég kemst ekki í að brugga neitt.

ég á þetta ger í bankanum þannig að ég rækta bara upp starter þegar ég tek næstu umferð.
Ertu farinn út?
Gæti ég sótt í kvöld?

Re: örninn er sestur

Posted: 13. Jun 2010 17:14
by kristfin
ég verð heima í kvöld, en sennilega ekki fyrr en eftir 9